Sjötti flokkur í Vatnaskógi byrjaði af krafti í gær. Það var boðið upp á fjölbreytta dagskrá. Knattspyrnumótið fór í gang, frjálsíþróttamótið hófst með keppni í kúluvarpi, boðið var upp á smíðaverkstæði og báta. Einhverjir drengir stöldruðu við í HM stofunni okkar og lásu syrpur eða gripu í spil. Aðrir fóru í stuttar gönguferðir um svæðið og allir tóku þátt í hópleikjum eftir hádegisverð.

Veðrið hélst ágætt, en rétt eftir kvöldverð komu snöggar og óvæntar vindkviður úr suðvestri yfir vatnið, sem leiddi til þess að tólf drengir á þremur árabátum enduðu upp í fjöru á norðurhlið Eyrarvatns undir vökulu auga starfsmanns sem fylgdi þeim eftir á mótorbát strax og í ljós kom að drengirnir réðu ekki við vindinn.

Kvöldvakan í kvöld var vönduð að vanda en hún endaði á sögu af samskiptum Jesú og lögvitrings (Lúk 10.25-37), þar sem Jesús segir söguna af Miskunnsama Samverjanum, til að minna lögvitringinn og okkur öll á mikilvægi þess að þjóna og aðstoða náunga okkar.

Þegar drengirnir komu á svæðið í gær var boðið upp á sænskar kjötbollur með kartöflumús, grænmeti, sósu og sultu. Í kvöldmat var síðan boðið upp á brauð og aspassúpu.

Myndir frá flokknum birtast á slóðinni https://www.flickr.com/photos/kfum-kfuk-island/albums/72157668955720317. Við lofum fleiri myndum næstu daga og göngumst við því að hafa ekki staðið okkur í myndatökum í gær.

Það er metnaður okkar sem störfum í Vatnaskógi að gera gott starf enn betra. Ef þú hefur ábendingar, athugasemdir eða vilt hafa samband við okkur hér í Vatnaskógi getur þú sent tölvupóst á elli@vatnaskogur.net.