Veisludagurinn í gær hér í Vatnaskógi gekk vel fyrir sig í gær og voru drengirnir vaktir af risaeðlu um morguninn sem að vakti gleði margra enda ekki á hverjum degi sem maður sér risaeðlur enn á lífi. Hoppukastalarnir voru síðan í fullu fjöri frameftir degi og eftir hádegi var hinn geysivinsæli foringjaleikur, þar sem að úrvalslið drengja öttu kappi við foringjana í knattspyrnu. Kvöldvakan var uppfull af lífi og fjöri og voru 3 leikrit, framhaldssaga, Sjónvarp Lindarrjóður, skonrokk og bikaraafhending ásamt úrslitum Biblíuspurningakeppninnar. Þetta var góður dagur og gengu drengirnir þreyttir og sáttir til rúms í gærkveldi.

Við fengum skyr í hádeginu í gær og í veislukvöldmatinn var síðan lambakjöt með sykruðum kartöflum, salati, rauðkáli og grænum og gulum baunum. Í hádeginu í dag verða síðan pizzur og loks verða kleinuhringir með kaffinu. Við munum einnig auglýsa óskilaföt í matartímum dagsins sem að hafa fundist á víð og dreif um Vatnaskóg þessa vikuna. Ef einhver óskilamunanna finnast síðar í Vatnaskógi, munum við síðan senda þá niður á Holtaveg 28 þar sem að hægt verður að leita að óskilafötum ef þið saknið einhvers.

Rúturnar leggja síðan af stað til Reykjavíkur um kl. 16:00 vegna þessa viljum við biðja þá foreldra/forráðamenn sem hyggjast sækja börnin sín upp í Vatnaskógi að vera komin á svæðið í síðasta lagi kl. 15:45. Ef krakkarnir verða sóttir er mikilvægt að við vitum það í tíma svo að þau geti sett farangurinn sinn til hliðar og hann fari ekki í rútuna. Rúturnar koma síðan að KFUM og KFUK húsinu í Reykjavík um kl. 17.

Það er búið að vera virkilega gaman að vera með öllum drengjunum og kynnast þeim hér í Skóginum og erum við þakklát fyrir samveruna með þeim þessa síðastliðnu viku. Fyrir hönd alls starfsfólksins hér, vil ég því þakka það traust sem foreldrar og forráðamenn sína okkur með því að senda börn sín í sumarbúðir og við tökum það traust alvarlega. Það er metnaður okkar sem störfum í Vatnaskógi að gera gott starf enn betra. Ef þú hefur ábendingar, athugasemdir eða vilt hafa samband við okkur hér í Vatnaskógi í tengslum við 9. flokk, þá getur þú sent tölvupóst á benjaminrs@hi.is eða david@advel.is eða haft samband við skrifstofu KFUM og KFUK í Reykjavík, sími 588 8899.

Myndir frá flokknum má síðan finna á eftirfarandi vefslóð, en gera má ráð fyrir að allar myndir frá flokknum verði komnar inn eftir morgundaginn svo að um að gera að líta yfir myndirnar þá: https://www.flickr.com/photos/kfum-kfuk-island/albums/72157699102781964 

Fyrir hönd forstöðumanna,
Benjamín Ragnar Sveinbjörnsson