Um Halldór Elías

Halldór Elías hefur starfað fyrir KFUM og KFUK með hléum síðan 1991, þegar hann var fyrst starfsmaður í sumarbúðunum í Vatnaskógi. Hann hefur leyst af sem æskulýðsfulltrúi, unnið að margvíslegum sérverkefnum, skrifað fræðsluefni og er ábyrgur fyrir handbók fyrir sumarbúðastarfsfólk sem kom fyrst út árið 2001 en hefur farið í gegnum tvær endurskoðanir síðan. Þá hefur Halldór annast námskeið fyrir sumarbúðastarfsfólk, haldið fyrirlestra og fræðsluerindi fyrir fólk á öllum aldri. Halldór var framkvæmdastjóri Æskulýðsstarf kirkjunnar í Reykjavíkurprófastsdæmum um tíma, framkvæmdastjóri safnaðarstarfs í Grensáskirkju, hefur skrifað kennsluefni fyrir Biskupsstofu, komið að starfsþjálfun djákna fyrir kirkjuna og staðið að námskeiðahaldi og endurmenntun presta og annars starfsfólks í kirkjunni. Síðustu ár hefur Halldór verið prestur í Church of the Redeemer United Methodist Church í Cleveland Heights, Ohio og starfar auk þess sem framkvæmdastjóri Hins íslenska biblíufélags. Halldór lauk BA prófi í djáknafræðum frá HÍ 1997 og hefur síðan öðlast tvær framhaldsgráður í guðfræði með áherslu á safnaðarstarf, skipulag og stjórnun. Hann fékk djáknavígslu í september 1997 og prestsvígslu í United Church of Christ í nóvember 2021.

Umsókn um starf á Sæludögum í Vatnaskógi 2019

Höfundur: |2019-10-11T14:20:56+00:0031. janúar 2019|

Sæludagar í Vatnaskógi er fjölskylduhátíð um Verslunarmannahelgina sem hefur verið haldin árlega frá 1992. Þátttakendur á hátíðinni ár hvert eru að jafnaði ríflega 1000 talsins. Skógarmenn KFUM leita að starfsfólki eldra en 18 ára til að aðstoða við framkvæmd hátíðarinnar [...]

Sæludagar í Vatnaskógi – Könnun

Höfundur: |2019-10-11T14:20:56+00:005. ágúst 2018|

Takk fyrir þátttökuna í Sæludögum í Vatnaskógi nú í ár. Hér fyrir neðan er þjónustukönnun vegna Sæludaga. Vinsamlegast svaraðu spurningunum hér að neðan svo að Sæludagar að ári megi ganga enn betur. Ef könnunin birtist ekki hér fyrir neðan má [...]

Þakkir fyrir traustið!

Höfundur: |2019-10-11T14:20:56+00:0013. júlí 2018|

Í dag, föstudag 13. júlí, er síðasti dagur 6. flokks þetta árið. Eftir viðburðaríkt veislukvöld í gærkvöldi verða drengirnir vaktir kl. 9:00. Morgunmatur hefst kl. 9:30 og að honum loknum er fánahylling og Skógarmannaguðsþjónusta. Að henni lokinni munu drengirnir pakka og [...]

Spennandi dagur og fullt af fótbolta

Höfundur: |2019-10-11T14:20:56+00:0011. júlí 2018|

Í gær, þriðjudag, voru spilaðir fjölmargir leikir í Svínadalsdeildinni, knattspyrnumóti Vatnaskógar. Þá voru bátarnir lánaðir út meiripart dagsins. Borðtennismótið var klárað, skákmót hófst og tímaskynskeppnin var í gangi allan daginn. Nokkrir drengir fundu sér tíma til að lesa syrpur og [...]

Góður upphafsdagur í sjötta flokki

Höfundur: |2019-10-11T14:20:56+00:0010. júlí 2018|

Sjötti flokkur í Vatnaskógi byrjaði af krafti í gær. Það var boðið upp á fjölbreytta dagskrá. Knattspyrnumótið fór í gang, frjálsíþróttamótið hófst með keppni í kúluvarpi, boðið var upp á smíðaverkstæði og báta. Einhverjir drengir stöldruðu við í HM stofunni [...]

Sjötti flokkur hefst í fyrramálið

Höfundur: |2019-10-11T14:20:56+00:009. júlí 2018|

Sjötti flokkur Vatnaskógar hefst á morgun, mánudag, en rétt um 100 drengir verða í Skóginum fram á föstudag. Foringjar sem annast dagskrá og umönnun drengjanna verða Gunnar Hrafn Sveinsson, Benjamín Pálsson, Matthías Guðmundsson, Kári Þór Arnarsson, Benedikt Guðmundsson, Eiríkur Skúli [...]

5. flokkur Vatnaskógar

Höfundur: |2019-10-11T14:20:56+00:005. júlí 2018|

Hér eru fréttir dagsins frá Vatnaskógi! Kvöldvakan í gær: Á kvöldvökunni í gær var leikrit, framhaldsaga auk hugleiðingar - og mikið sungið. Veðrið: Eftir hádegi skall á blíða logn, bjart og hiti um °13 - frábært veður. Maturinn í dag: Gullas í hádegismat, [...]

Fara efst