Heil og sæl

Héðan úr Vatnaskógi er allt gott að frétta. 98 hressir drengir komu hingað fullrir eftirvæntingar, tilbúnir til að eiga hér ógleymanlega viku. Eftir að búið var að koma sér fyrir í skálunum var borðað og farið svo út í frjálsan tíma. Fótboltinn var vinsæll ásamt bátunum og nokkrir fengu að vaða út í kalt Eyrarvatnið. Útileikjaforingi er öflugur í þessum flokki og hefur nú þegar boðið upp á útsýnisgöngur, skógarhögg og virkisgerð úti í skógi. Í íþróttahúsinu fara fram hinar ýmsu keppnir og var riðið á vaðið með þythokkímóti í gær en nú í dag hófst keppni í köngulóarfótbolta, skemmtilegt það.

Lang stærstur hluti hópsins hefur komið hingað áður og þekkir staðinn vel. Á kvöldvökunni sló leikhópurinn villiöndin í gegn,  framhaldssagan átti sinn sess ásamt því að drengirnir sungu skógarmannasöngva fullum hálsi. Góður sönghópur hér á ferð.

Eftir kvöldvöku tók við kvöldhressing og síðan svefn. Ró var komin í öll hús um hálf tólf og allir sváfu þeir sætt og rótt til kl hálf níu í morgun.

Við sendum góðar kveðjur heim. Myndir má finna hér.

Kveðja. Arnór og Hilmar, forstöðumenn.