Ee-apaPguxLqE4FapTIkrcWMPJBethTYgbgO6IlOdecHæfileikasýning barnanna á Sæludögum í Vatnaskógi 2013
•    Hæfileikasýning barnanna er fyrir krakka upp að 13 ára aldri.
•    Líkt og í Eurovision og í Söngvakeppni félagsmiðstöðva, meiga ekki vera lengri en 3 mín.
•    Tekið er við skráningum með tölvupósti á netfangið  sæludagar@kfum.is  til kl. 12:00 föstudaginn 2. ágúst.

Skráning mun einnig fara fram á Sæludögum í Vatnaskógi  fyrir hádegi á laugardaginn 3. ágúst milli kl. 10:00 og 12:00 hjá merktum starfsmanni í Matskála/sjoppunni á staðnum.

Við óskum sérstaklega eftir skráningum á tölvupósti fyrir helgina, því það auðveldar skipulagningu og undirbúning.

ATH!  Ekki er hægt að bæta við þátttakendum eftir að skráningu líkur kl. 12:00 á laugardegi.

Við skráningu er óskað eftir:

  1. Nafni/nöfnum,
  2. Aldri
  3. Stuttri lýsingu á atriðinu,
  4. Nafni og símanúmeri forráðamanns/tengiliðs.

•    Nota má „playback“,  undirspil sem þátttakandi leggur til sjálfur.  Það þarf að fylgja skráningu.  Sé skráð á staðnum þarf að koma með undirspilið á CD diski eða USB kubb.
•    Undirleikari verður á staðnum sem getur spilað undir einfaldari söngatriði, sb. lög úr sunnudagaskóla.  Hafi þátttakendur hljóðfæraleikara á eigin vegum til að leika undir söng er það velkomið (jafnvel þó viðkomandi sé eldri en 13 ára, enda telst hann ekki hluti af atriðinu).
•    Sýningin mun fara fram í tveimur hlutum Sunnudaginn 4. ágúst.   Fyrri hluti hefst kl. 15:00, seinni hluti kl. 16:00.  Stutt hlé verður á milli hluta.  Áhorfendum gest tækifæri til að vera með alla sýninguna, eða velja annan hvorn hlutann.
•    Fljótlega eftir að skráningu líkur á laugardegi verður dagskrá tilkynnt á upplýsingatöflum í Vatnaskógi, þ.á.m. hvaða þátttakendur koma fram í hvorum hluta og í hvaða röð.
•    Í ár verða krakkarnir kallaðir í „sound-test“, en ekki fulla æfingu.  Þau taka þar hluta af atriðinu svo tæknimenn geti stillt þau inn á míkrafóna, kynnar fái yfirsýn yfir atriðin og sviðsmenn geti verið klárir varðandi aðstoð.  Ekki er gert ráð fyrir að þátttakendur taki allt atriðið á sviðinu fyrr en á sýningunni sjálfri.   Væntanlega munum við úthluta þeim sem þegar verða skráðir, tíma í sound-testi áður en kemur að helginni.  Þeir sem verða skráðir á staðnum fá tíma úthlutað við skráningu.  Dagskrá Sæludaga er bæði fjölbreytt og þétt.  Tímasetningar þurfa að taka mið af því hvenær salurinn er laus.
•    Ekki hefur þurft að setja þak fjölda þátttakenda í hverju atriði, en hafa þarf í huga að við höfum aðeins 4 míkrafóna á sviðinu.  Þá er líka gott að vita að svæði til athafna á sviðinu er innan við  4 x 6 metrar, t.d. ef um dansatriði er að ræða.
•    Hæfileikasýningin er ekki keppni milli atriða. Krakkarnir eru að fá tækifæri til að koma fram, takast á við áskorun og sigra sjálfan sig.  Allir fá viðurkenningu fyrir þátttöku að sýningu lokinni.   Eitt til þrjú atriði eru valin úr sýningunni, til að koma fram á kvöldvöku á sunnudagskvöldi.  Því fylgir vissulega heiður.
•    Rétt er að benda á að netsamband í Vatnaskógi er lélegt.  Ekki treysta á að hægt sé að ná í gögn, texta eða playback á netinu eftir að komið er á staðinn.
•    Ef svo ólíklega vill til að fjöldi atriða virðist ætla að sprengja þau tímamörk sem hæfileikastundin fær í dagskrá Sæludaga, áskilja stjórendur sér rétt til að takmarka fjölda atriða.   Til slíka aðgerða verður þó aðeins gripið í algjörri neyð.