IMG_0030Í lok sumars býður Vatnaskógur upp á feðgaflok fyrir feður og syni.

Markmið þeirra er að efla tengsl feðga í frábæru umhverfi Vatnaskógar og taka þátt í skemmtilegri dagskrá.

Verð í feðgaflokk er kr. 12.500.- fyrir einstakling.
Innifalið í verði er fullt fæði, gisting, og öll dagskrá.
Eftirfarandi upptalning gefur hugmynd um nauðsynlegan farangur:
Sæng eða svefnpoki, koddi, lak, regnföt, úlpa, stígvél, íþróttaskór, inniíþróttaskór, nærföt, nægir sokkar, peysur, buxur, betri fatnaður, sundföt, handklæði, sápa, tannbursti.

Skráning fer fram HÉRNA eða í Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK í síma 588-8899 og einnig á: skraning.kfum.is .

Hægt er að taka rútu og kostar það kr. 2.500.-Rútan leggur af stað frá húsi KFUM og KFUK á Holtavegi 28, Reykjavík kl. 17:30 á föstudegi og kl. 14:00 úr Vatnaskógi á sunnudegi.

 

Tilkynna þarf ef menn hyggjast nýta sér rútuferð í síma 588-8899 eða í tölvupósti á skrifstofa@kfum.is

 

Flokkurinn er 30. ágúst til 1. september.

Dagskrá:
Föstudagur:
17:30 Brottför frá Holtavegi 28 í Reykjavík (fyrir þá sem fara með rútu)
18:00 – 18:30 Komið sér fyrir – frjást val á herbergjum
19:00 Kvöldverður
19:40 Frjáls tími
–  Gönguferð
–  Bátar
–  Íþróttir
–  Íþróttahús
21:15 Kvöldhressing í matsal
21:30 Kvöldvaka
Bænastund í kapellu

Laugardagur:
8:30 Vakið
9:00 Fánahylling og morgunverður
9:30 Biblíulestur
10:00 Fræðsla fyrir feður
10:00 Dagskrá fyrir drengi í íþróttahúsi
11:15 Frjáls tími
–  Bátar
–  Smiðjan
–  Íþróttahúsið
12:30 Hádegisverður
13:00 Frjáls tími
–  Frjálsar íþróttir
–  Bátar og vatnafjör
–  Íþróttahúsið
–  Útileikir
15:30 Kaffitími
16:00 Frjáls tími
–  Hermannaleikur
–  Bátar
–  Smiðjan
–  Slökun í heitu pottunum
19:15 Hátíðarkvöldverður
21:00 Hátíðarkvöldvaka
Kvöldkaffi
Bænastund í kapellu

Sunnudagur:
9:00 Vakið
9:30 Fánahylling og morgunverður
10:00 Skógarmannaguðsþjónusta
11:00 Frjáls tími
–  Knattspyrna
–  Bátar
–  Smiðjan
–  Íþróttahús
13:00 Hádegisverður
–  Lokastund
–  Heimferð
——————————

Skógarmenn KFUM
Holtavegi 28
104 Reykjavík
Sími 588-8899