Þá er 1. flokkur Vatnaskógur hafinn en tæplega 90 flottir drengir eru mættir í Skóginn góða. Það er stór hópur sem er að koma í fyrsta sinn. Bátar, íþróttahús, útileikir eru fyrirferðarmikil og drengirnir duglegir að taka þátt. Fótboltinn er mjög vinsæll og mikil þátttaka í Svinadalsdeildinni.
Þetta fer mjög vel af stað. Tryggt var að allir væru með sínum félögum. Góð stemming er í hópnum. Hér eru góðir drengir og hópurinn skemmitlegur.
Kvöldvakan gekk vel í gær hópurinn vel með á nótunum.
Maturinn í dag: Kjúklingaleggir í hádegismat, stórkaka og heimabakað kryddbrauð í kaffitímanum og ávaxtasúrmjólk í kvöldmat.
Veðrið: Logn, skýjað en bjart hiti um 15°
Já svona er lífið í Vatnaskógi.
Kær kveðja, Ársæll forstöðumaður.