Þá er 1. flokkur Vatnaskógur hafinn en tæplega 90 flottir drengir eru mættir í Skóginn góða.  Það er stór hópur sem er að koma í fyrsta sinn.  Bátar, íþróttahús, útileikir eru fyrirferðarmikil og drengirnir duglegir að taka þátt.  Fótboltinn er mjög vinsæll og mikil þátttaka í Svinadalsdeildinni.

Þetta fer mjög vel af stað.  Tryggt var að allir væru með sínum félögum.  Góð stemming er í hópnum. Hér eru góðir drengir og hópurinn skemmitlegur.

Kvöldvakan gekk vel í gær hópurinn vel með á nótunum.

Maturinn í dag: Kjúklingaleggir í hádegismat, stórkaka og heimabakað kryddbrauð í kaffitímanum og ávaxtasúrmjólk í kvöldmat.

Veðrið: Logn, skýjað en bjart hiti um 15°

Hér eru nokkrar myndir

Já svona er lífið í Vatnaskógi.

Kær kveðja, Ársæll forstöðumaður.