Í gær mættu tæplega 100 drengir, 10-12 ára í Vatnaskóg. Það var spenna í hópnum enda gaman að koma í sumarbúðir. Það kom skemmilega á óvart hve margir drengir höfðu komið í Vatnaskóg áður.

Tekið var á móti hópnum í matskálanum, þar dreifast drengirnir á 7 borð en borðin eru hóparnir sem þeir tilheyra meðan á dvölinni stendur. Á hverju borði er borðforingi sem hefur umsjón með sínum hóp. „Borðin“ sofa einnig saman í herbergjum en hvert borð dreifist á 2-3 herbergi en herbergin í Birkiskála þar sem allir drengirnir sofa eru 4,6 eða 8 manna.

Dagurinn í Vatnaskógi byggist upp á því að á milli matartíma er boðið upp á frjálsa dagskrá þar sem drengirnir geta valið sér mismunandi verkefni og farið á milli staða. Hefðbundið dagsskipulag er á þessa leið:

 

Kl. 08:30 Vakið

09:00 Morgunmatur

Morgunstund með fræðslu þar sem við kennum um Biblíuna og orð Guðs.

Frjáls tími t.d. knattspyrna, bátar, íþróttahús, útileikir, frjálsar íþróttir og smíðaverkstæði.

12:00 Hádegismatur – heit máltíð

Frjáls tími

15:00 Kaffitími

Frjáls tími

18:00     Kvöldmatur

Frjáls tími

20:30 Kvöldkaffi / Kvöldvaka með söng, leikriti, framhaldssögu og hugvekju.

Bæna- og kyrrarstund í Kapellu (fyrir þá sem vilja)

Farið í háttinn

 

Dagskráin fór vel að stað í gær og tóku margir drengir þátt í knattspyrnu og leikjum. Bátar voru mjög vinsælir en nokkir nýjir hjólabátar voru teknir í notkun. Einnig var boðið upp á gönguferð um staðinn og eins nota margir þennan fyrsta dag til að kynnast staðnum og öllu því sem boðið er upp á. Vatnaskógarkvöldvaka í lok dags er sívinsæl og það voru því allir orðnir þreyttir þegar farið var að sofa.

Flokkurinn hefur farið vel af stað og hlakkar okkur til að kynnast drengjunum betur næstu daga.

Eins og gengur með hóp eins og þennan hefur örlítið borið á heimþrá, það er eðlilegt, enda stórt skref að fara frá foreldum sínum. Það hefur gengið vel að fá þá drengi til að taka þátt í dagskráni en þeir gleyma þeir sér við leik og þannig fjarar heimþráin út. Við samband við foreldra ef upp kemur heimþrá. Það getur reynst gott fyrir marga drengi að fá að heyra í foreldrum sínum og vera hvattir áfram.

Maturinn: Í gær var boðið var upp á kjötbollur í hádegismat heimabakað í kaffinu og ávaxasúrmjók í kvöldmat. Í kvöldkaffi voru ávextir og kex. Í dag verður fiskur í hádegismat.

Veðrið: Í dag, miðvikudag, er rigning með köflum og vindur svo bátarnir eru því miður lokaðir, en spáin er góð.

Myndir: Myndir frá deginum í gær verða settir inn hér inn á síðuna síðar í dag.

Símatími: Við minnum á símatími milli kl. 11 og 12 ef foreldrar vilja hafa samband. Síminn í Vatnaskógi er 433 8959.

Myndir: Frá gærdeginum eru komnar inn  HÉRNA:

Kv. Ársæll Aðalbergson, forstöðumaður