Fyrr í dag komu tæplega 100 börn hingað til okkar í Vatnaskóg sem munu dvelja hér fram á fimmtudag, 21. júlí. Fyrsta á dagskrá var að velja sér borð í matskálanum, borð 1 til 7 þar sem þau koma til með að sitja alla matmálstíma flokksins ásamt borðforingja.

 

Í dag hefur verið fínasta veður, um 12°C og lítill sem enginn vindur. Hér gengur allt vel, mikið stuð og krakkarnir hressir. Nokkur mót hófu göngu sína í dag og þátttakan var góð. Þar á meðal var haldið borðtennismót eftir hádegismatinn og borðtennismeistari flokksins fundinn. Eftir kaffitímann var fyrsti leikur Svínadalsdeildarinnar, sem er knattspyrnukeppni Skógarmanna og voru það borð 1 og 7 sem kepptu fyrsta leik deildarinnar. Í hverjum flokki krýnum við frjálsíþróttafólk flokksins og keppt var í 60 metra hlaupi og kúluvarpi. Í kvöld var haldin kvöldvaka að hætti Skógarmanna þar sem krakkarnir héldu uppi miklu stuði og stemningu. Þar var sungið, sögð framhaldssaga, hugleiðsla og leikrit.

Þrátt fyrir fjölbreytta og skemmtilega dagskrá er flokkurinn rétt að byrja.

 

Maturinn í dag:

Hádegismatur: Kjúklingaleggir, kartöflur og sósa.

Kaffitími: kanilsnúður og jógúrtkaka

Kvöldmatur: Súrmjólk með ávöxtum

Kvöldkaffi: Ávextir

 

Heimþrá:

Í tæplega 100 manna hópi er ekki ólíklegt að einhver börn finni fyrir heimþrá fyrsta sólarhringinn eða svo. Því þykir mér mikilvægt að útskýra fyrir þeim foreldrum sem áhuga hafa hvaða hugmyndafræði og nálgun við aðhyllumst í þessum flokki í Vatnaskógi í tengslum við heimþrá. Því er hér smá innlegg.

Þrátt fyrir að heimþrá hafi ekki mikil áhrif nema á mjög lítinn hluta þeirra sem hér dvelja hverju sinni er heimþrá mikilvæg tilfinning og getur snert okkur öll. Heimþrá snýst um missi og er þannig nátengd sorg. Viðbrögð barnanna eru þannig oft eins og skyndikúrs í sorgarviðbrögðum. Þegar heimþrá nær tökum á börnunum, geta þau komið með ásakanir, lokað sig af, reiðst og/eða notað samningatækni til að takast á við vanlíðan/sorgina. Stundum fylgir líkamleg vanlíðan, oftast nær í tengslum við magann (eða meltingarkerfið) en getur einnig komið fram sem hausverkur eða stirðleiki í liðum.

Fullorðnir einstaklingar þekkja væntanlega flest þessi einkenni, enda fullkomlega eðlileg viðbrögð við áfalli og breyttum aðstæðum. Fyrir mörg börnin í sumarbúðum eru þessar sveiflukenndu og sterku tilfinningar hins vegar nýjar og jafnvel áður óþekktar og þeir hafa ekki hugmynd um hvernig hægt er að takast á við þær.

Í Vatnaskógi leggjum við áherslu á að takast á við þessar tilfinningar í samráði við foreldra og höfum samband strax og við teljum að tilfinningarnar hefti tækifæri barnanna til að njóta dvalarinnar. Það að við höfum samband merkir samt alls ekki að við teljum að viðkomandi barn þurfi að fara heim, heldur miklu fremur viljum við að þekking foreldra á barninu nýtist til að hjálpa okkur að finna leiðir til að leyfa barninu að njóta sín. Samskipti og samstarf milli allra aðila, barns, foreldra og starfsmanna er lykill að þessu.

Aðferðafræðin í heimþrármálum hérna í Vatnaskógi þessa vikuna er sú að hjálpa barninu að brjótast út úr sorgarferlinu, sættast við umhverfi sitt og sjá tækifærin í dvölinni. Þannig viðurkennum við og skiljum tilfinningarnar en reynum að beina athygli þeirra frá vanlíðaninni að tækifærunum.

Við trúum því að þessi reynsla barnanna og það að láta ekki stjórnast af vanlíðan, þó hún sé viðurkennd, sé mikilvæg fyrir börnin og hjálpi þeim til að þroska tilfinningar sínar og andlegt atgervi. Við skiljum þó líka að það getur gerst að aðstæður, upplifun og tilfinningar barnanna séu þess eðlis að þeir eru einfaldlega ekki tilbúnir til að takast á við dvölina og þurfa að vera skemur en áætlað var í upphafi. Það gerist þó mjög sjaldan.

Starfsfólk:

Foringjar sem annast dagskrá og umönnun barnana í flokknum og þeir eru:

Guðmundur Tómas Magnússon, 1. borð – Bátaforingi

Svanhildur Reynisdóttir, 2. borð – Frjálsíþróttaforingi

Almar Tristan Almarsson, 3. borð – Alhliðaforingi

Þórarinn Darri Ólafsson, 4. borð – Útileikjaforingi

Hrannar Ása Margnúsar, 5. borð – Bátaforingi

Lára Ruth Clausen, 6. borð – Innileikjaforingi

Jakob Freyr Einarsson, 7. borð – Knattspyrnuforingi

Forstöðufólk flokksins eru Benjamín Ragnar Sveinbjörnsson og Þórdís Hafþórsdóttir og eru börnunum og foringjum til halds og trausts.

Hreiðar Örn Zoëga Stefánsson er ráðsmaður í þessum flokki og hefur einnig umsjón yfir þrifum staðarins. Starfsfólk eldhússins eru Birna Júlía Björnsdóttir, Eva Sigurðardóttir, Sverrir Hákon Marteinsson og Tómas Ingi Halldórsson.

Þess utan eru ungir aðstoðaforingjar á svæðinu, framtíðarleiðtogar í starfi KFUM og KFUK. Þeir ganga í allskonar verkefni á svæðinu, hvort sem það er aðstoð í gönguferðum, uppvask, smíðar, frágangur og tiltekt á svæðinu eðaskipulag leikja undir umsjón foringja. Aðstoðarforingjar þessa flokks eru þau Eydís, Messíana, Bríet og Helena.

Þá eru Þórir Sigurðsson og Sigurður Jóhannesson í flokknum en þeir koma að ýmsu daglegu viðhaldi á tækjum og húsnæði.

 

293811705_354878649984474_6280119465184925506_n

 

Ef það eru einhverjar spurningar þá er símatími forstöðufólks á milli 11:00 og 12:00 alla daga. Símanúmerið er: 433 8959