Í gær, mánudag komu 107 drengir í Vatnaskóg og munu þeir dvelja hér fram á föstudaginn 16. ágúst. Þegar að drengirnir komu hingað byrjuðu þeir á því að velja sér borð í matskálanum til þess að sitja við, borð 1 til 8. Við hvert borð er borðforingi og aðtoðarmaður hans sem annast drengina og hefur gott eftirlit með þeim.

Í gær var NA átt nokkuð hvasst og rigndi er leið á kvöldið. Í dag þriðjudag er ágætis veður, 12°C skýjað og nánast logn. Allt gengur vel. Þetta eru hressir og skemmtilegir drengir sem eru duglegir að taka þátt í því sem er í boði eins og t.d. útileikir, keppnir í ýmsum greinum frjálsra íþrótta, skemmitlegir innleikir, bátar í fína veðrinu í dag og að ógleymdri smíðastofunni. Þá er Svínadalsdeildin í knattspyrnu komin á fulla ferð hér í Vatnaskógi en í henni keppa borðin sín á milli í fótbolta, mjög spennandi. Á kvöldin eru kvöldvökur að hætti Skógarmanna með leikjum, leikritum, framhaldssögu, hugleiðingu og söng.

Fleiri fréttir koma inn næstu daga.

Mánudagsmatseðill!

Hádegismatur: Lasagne hvítlauksbrau og grænmeti.

Síðdegiskaffi:Bananabrauð og eplakaka. 

Kvöldmatur: Fiskibollur, hrísgrjón og grænmeti. 

Kvöldhressing: Ávextir.

Þriðjudagsmatseðill!

Morgunmatur: Korn flex, Cherrios, súrmjólk og tilheyrandi.

Hádegismatur: Grænmetisbuff og meðlæti.

Síðdegiskaffi: Tebolla og súkkulaðikaka

Kvöldmatur: Kjötbollur og meðlæti

 

Starfsfólk Vatnaskógar í 12. flokki:

Borð 1.   Fannar Smári Jóhannsson alhliðaforingi honum til halds og trausts eru aðstoðarforingjarnir Arnar Bjarki Jóhannsson og Alexander Young

Borð 2.  Bjartur Dalbú Ingibjartsson knattspyrnuforingi , honum til halds og trausts er aðstoðarforinginn Ingvar Daðason.

Borð 3.  Pétur Bjarni Sigurðsson bátaforingi. Honum til halds og trausts eru aðstoðarforinginn Steinn Traustason.

Borð 4.   Hallur Proppé innileikjaforingi honum til halds og trausts er aðstoðarforinginn Þórður Héðinsson.

Borð 5.  Guðjón Daníel Bjarnason bátaforingi. honum til halds og trausts er aðstoðarforinginn Bjarki Þór Ársælsson.

Borð 6. Aron Steinsen frjálsíþróttaforingi honum til halds og trausts er aðstoðarforinginn Bjartur Þórisson.

Borð 7. Tristan Enok útileikjaforingi  honum til halds og trausts er aðstoðarforinginn Grímur Ragnarsson.

Borð 8. Benedikt Þórisson alhliðaforingi, honum til halds og trausts er aðstoðarforinginn Stefan Kvaran

Eldhússtarfsfólkið: Sverrir Hákon Marteinsson stýrir eldhúsi og þrifum. Honum til aðstoðar eru Ásta María, Brynjar Már, Dagný og Tinna Sif. Sigurður Jóhannesson, Snorri Rúnarsson og Þórir Sigurðsson sinna ýmsu daglegu viðhaldi á húsnæði sem og á tækjum ýmis konar. Einnig er Albert Ebenezer Bergsteinsson starfandi vinnumaður og sinnir ýmsu eins og slætti, svo dæmi sé tekið. Á staðnum eru einnig smiðir sem vinna að byggingju nýs matskála.

Borðlausir aukaforingar eru Baldur Ólafsson og Gunnar M Sandholt og forstöðumaður flokksins er Ársæll Aðalbergsson.

Ef það vakna einhverjar spurningar þá er símatími forstöðumanns á milli 11:00 og 12:00 alla daga.

Símanúmerið er: 433 8959.

 

Nokkur orð um heimþrá

Í yfir 100 manna hópi er ekki ólíklegt að einhverjir drengir finni fyrir heimþrá fyrsta sólarhringinn eða svo. Því þykir mér mikilvægt að útskýra fyrir þeim foreldrum sem áhuga hafa hvaða hugmyndafræði og nálgun við aðhyllumst í þessum flokki í Vatnaskógi í tengslum við heimþrá. Því er hér smá innlegg.

Þrátt fyrir að heimþrá hafi ekki mikil áhrif nema á mjög lítinn hluta þeirra sem hér dvelja hverju sinni er heimþrá mikilvæg tilfinning og getur snert okkur öll. Heimþrá snýst um missi og er þannig nátengd sorg. Viðbrögð drengjanna eru þannig oft eins og skyndikúrs í sorgarviðbrögðum. Þegar heimþrá nær tökum á drengjunum, geta þeir komið með ásakanir, lokað sig af, reiðst og/eða notað samningatækni til að takast á við vanlíðan/sorgina. Stundum fylgir líkamleg vanlíðan, oftast nær í tengslum við magann (eða meltingarkerfið) en getur einnig komið fram sem hausverkur eða stirðleiki í liðum.

Fullorðnir einstaklingar þekkja væntanlega flest þessi einkenni, enda fullkomlega eðlileg viðbrögð við áfalli og breyttum aðstæðum. Fyrir marga drengina í sumarbúðum eru þessar sveiflukenndu og sterku tilfinningar hins vegar nýjar og jafnvel áður óþekktar og þeir hafa ekki hugmynd um hvernig hægt er að takast á við þær.

Í Vatnaskógi leggjum við áherslu á að takast á við þessar tilfinningar í samráði við foreldra og höfum samband strax og við teljum að tilfinningarnar hefti tækifæri drengjanna til að njóta dvalarinnar. Það að við höfum samband merkir samt alls ekki að við teljum að viðkomandi drengur þurfi að fara heim, heldur miklu fremur viljum við að þekking foreldra á barninu nýtist til að hjálpa okkur að finna leiðir til að leyfa barninu að njóta sín. Samskipti og samstarf milli allra aðila, barns, foreldra og starfsmanna er lykill að þessu.

Aðferðafræðin í heimþrármálum hérna í Vatnaskógi þessa vikuna er sú að hjálpa barninu að brjótast út úr sorgarferlinu, sættast við umhverfi sitt og sjá tækifærin í dvölinni. Þannig viðurkennum við og skiljum tilfinningarnar en reynum að beina athygli þeirra frá vanlíðaninni að tækifærunum.

Við trúum því að þessi reynsla drengjanna og það að láta ekki stjórnast af vanlíðan, þó hún sé viðurkennd, sé mikilvæg fyrir drengina og hjálpi þeim til að þroska tilfinningar sínar og andlegt atgervi. Við skiljum þó líka að það getur gerst að aðstæður, upplifun og tilfinningar drengjanna séu þess eðlis að þeir eru einfaldlega ekki tilbúnir til að takast á við dvölina og þurfa að vera skemur en áætlað var í upphafi. Það gerist þó mjög sjaldan.

 

 

Fleiri myndir koma síðar.

Með bestu kveðju, Ársæll