Vinnuflokkur verður í Vatnaskógi laugardaginn 22. maí á milli kl. 9:00 og 17:00.

Verkefnin verða af ýmsum toga m.a.

  • Umhverfi nýja skálans verður snyrt og lagfært m.a. þökulögn 80m²
  • Borin sandur, fræ og áburður á knattspyrnuvöllinn (fullbókað í það verkefni)
  • Nýjar rennur settar á Matskálann og rennuniðurföll sett á nýja skálann.
  • Viðgerð á grindverki.
  • Lokafrágangur við bryggjuna
  • Ný auka fánastöng sett niður

Hádegisverður og kaffi í boði.
Bílferð fyrir þá sem þess óska.
Þeir sem hafa tök á að vera með vinsamlega hafið samband við undirritaðan

arsaell(hjá)kfum.is
eða í síma 899-7746
Bestu kveðjur
Ársæll