Á sunnudaginn þann 8.maí kl. 20:00 blása Skógarmenn til stórtónleika.
Eins og flestum er kunnugt eru Skógarmenn að reisa nýjan svefn- og þjónustuskála og mun öll innkoma renna til framkvæmda við nýja skálann.
Á tónleikunum koma fram: Karlakór KFUM, Valgeir Guðjónsson, Jóhann Helgason og Bogomil Font og hákarlarnir. Kynnir er hinn síhressi séra Sigurður Grétar Sigurðsson. Aðgangseyrir er 2.000 kr.
Fyrir tónleikana (frá kl. 19:00) er hægt að kaupa sér grillaða hamborgara og eftir tónleikana verður hægt að kaupa kaffi og meðlæti.
Allir velkomnir
ATH: Hægt að kaupa miða
HÉRNA
Tilvalið að koma, fagna sumri og njóta skemmtilegrar dagskrár og styðja mikilvæga uppbyggingu í Vatnaskógi.
Þess má geta að fyrsti vinnuflokkur vorsins verður á laugardaginn. Þar verður meðal annars unnið við nýbygginguna.
Skógarmenn: Áfram að markinu