Fyrsti dagurinn í ævintýraflokknum hér í Vatnaskógi, gekk með miklum sóma. Knattspyrna, jaðardiskakast, kúluvarp, borðtennismót, "pool"-mót, bátar, smíðar, kvöldvaka, góður matur og 60 metra hlaup voru á meðal þess sem í boði var fyrsta sólarhringinn, enda ákváðum við að hefja flokkinn á hefðbundinn hátt. Dagskrá ævintýranna hefst síðan þegar líður á daginn í dag.
Hægt er að nálgast myndirnar úr flokknum á:
http://www.flickr.com/photos/vatnaskogur.
Hægt er að hafa samband við forstöðumann flokksins á netfanginu: elli@vatnaskogur.net.