Dagana 10. til 12. febrúar n.k. verður fjölskylduflokkur í Vatnaskógi, með skemmtilegri og fjölbreyttri dagskrá (sjá fyrir neðan).

Í fjölskylduflokk er gott að vera og notalegt andrúmsloft. Þar gefst frábært tækifæri til að efla fjölskyldutengsl og eiga góðan tíma saman. Í flokknum er boðið upp á frábært umhverfi, afslappaða og uppbyggilega dagskrá, auk líflegra umræðna á fullorðinsstundum.

Starfsmenn Vatnaskógar hugsa vel um þátttakendur, og kapp er lagt á að allir skemmti sér vel. Gert er ráð fyrir því að hver fjölskylda geti notið tímans í Vatnaskógi á eigin forsendum í bland við fjöruga dagskrá.
Flokkurinn er opinn fyrir alla aldurshópa.

Verð er kr. 8.500 fyrir manneskju, frítt er fyrir börn á aldrinum 6 ára og yngri. Hámarksverð fyrir fjölskyldu er kr. 29.500.

Skráning er hafin í Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK, Holtavegi 28 í síma 588-8899.
Einnig hægt að skrá sig með því að senda tölvupóst á
skrifstofa@kfum.is .

Upplýsingar:

Vert er að vera vel búin/n til að njóta dvalarinnar sem best. Oft er mjög fallegt í Vatnaskógi á veturna, en allra veðra er von á þessum árstíma.
Rétt er að hafa búnað til útiveru s.s. stígvél eða gönguskó, regngalla, hlý útiföt, föt til skiptanna, húfu, stuttbuxur, sundföt (fyrir þá sem vilja fara í heita potta) og íþróttaskó til notkunar í íþróttahúsi og annað sem hver og einn telur nauðsynlegt. Einnig þarf að vera með svefnpoka eða sæng (og rúmföt og lak).
Stjórnendur flokksins verða þeir Ársæll Aðalbergsson framkvæmdastjóri Vatnaskógar og sr. Sigurður Grétar Sigurðsson sóknarprestur í Útskálaprestakalli.
Í fjölskylduflokkinn er mæting í Vatnaskóg milli kl. 18:30 og 19:00 á föstudeginum 10. febrúar, og dagskráin hefst formlega það kvöld með kvöldverði kl. 19.00.

Reiknað er með að þátttakendur ferðist á einkabílum á staðinn. Ekki verða rútuferðir.

Dagskrá:

Föstudagur 10. febrúar

19:00 Kvöldverður
20:00 Kvöldvaka í Gamla Skála
21:00 Frjáls tími
– Bænastund í kapellu
– Íþróttahúsið opið
– Matsalurinn opinn

Laugardagur 12. febrúar

08:30 Vakið
09:00 Morgunverður
09:30 Morgunstund
-Biblíulestur
-Fræðslustund foreldra
-Leikstund
-Íþróttahúsið opið
-Föndursmiðjan opin
12:00 Hádegismatur
13:00 Frjáls tími
– Gönguferð
– Föndursmiðjan
– Íþróttahúsið opið
15:00 Síðdegiskaffi
15:30 Frjáls tími
– Kassabílar
– Frjálsar íþróttir
– Íþróttir og leikir í íþróttahúsi
– Undirbúningur fyrir hæfileikasýningu á kvöldvöku
– Heitir pottar við íþróttahús
18:30 Hátíðarkvöldverður – veislukvöld
19:30 Kvöldvaka
21:00 Kvöldganga (stutt ganga sem endar í Kapellunni með bænastund)
21:00 Matsalurinn opinn fram eftir kvöldi

Sunnudagur 13. febrúar

Frá kl. 09:30 – 10:30 Morgunverður
10:00 Íþróttahúsið opið
11:00 Útivera
12:00 Fjölskylduguðsþjónusta
Umsjón Sr. Sigurður Grétar Sigurðsson
13:00 Hádegismatur
14:00 Brottför

Fjölskylduflokkur er tilvalinn fyrir fjölskyldur, stórar sem smáar, til að:
– njóta þess að vera saman
– fara í gönguferðir í fallegu umhverfi
– leika sér í íþróttum og leikjum
– vera með á Skógarmannakvöldvökum
– taka þátt í fræðslustundum
– skapa í listasmiðjunni

Almennar upplýsingar um Vatnaskóg:

Vatnaskógur er æskulýðsmiðstöð KFUM og KFUK og er staðsett við Eyrarvatn í Hvalfjarðarsveit.
Umhverfis staðinn er 220 hektara skógur.
Skammt frá Vatnaskógi er Hallgrímskirkja á Saurbæ á Hvalfjarðarströnd, Hótel Glymur og Félagsheimilið að Hlöðum.

Á staðnum er meðal annars:
Gamli skáli, sem er elsta hús staðarins (vígður árið 1943), og er með gistirými fyrir 48 dvalargesti í þremur svefnsölum og tveimur minni herbergjum.
Í skálanum er kvöldvökusalur fyrir rúmlega 100 manns með arni, hljóðfærum og skjávarpa.
Birkiskáli er nýjasta hús staðarins, tekinn í notkun árið 2000. Þar er gistirými fyrir 64 dvalargesti í þrettán herbergjum. Unnið er við 540 m² viðbyggingu við húsið.
Matskáli er með matsal sem tekur yfir 100 manns í sæti og eldhúsi sem búið er fullkominni eldunar- og uppþvottaaðstöðu.
Íþróttahús er með 350 m² íþróttasal, góðum íþróttadúk á gólfi og 6 m lofthæð. Þá er í húsinu notaleg setustofa og leiksvæði með ýmsum leiktækjum. Góð sturtuaðstaða er í íþróttahúsinu. Við íþróttahúsið eru einnig heitir pottar.
Bátaskýli er við Eyrarvatn. Í því eru geymdir bátar sem vinsælt er að nýta til fiskveiða og annarrar skemmtunar á sumrin. Athugið að Eyrarvatn er iðulega frosið á þessum árstíma. Ísinn getur verið skemmtilegur til leikja og gönguferða, en getur verið varasamur.
Kapellan er lítið og fallegt bænahús í rjóðri rétt hjá Gamla skála. Fallegur upplýstur göngustígur liggur að kapellunni.