Nú um helgina, 1.-3.júní, fer árlegur feðginaflokkur fram í Vatnaskógi. Flokkurinn er ætlaður feðrum og dætrum frá 6 ára aldri.

Á dagskrá verða íþróttir, gönguferðir, kvöldvökur, fræðslustundir og margt fleira.

Að fara í feðginaflokk er gott tækifæri fyrir feður að koma í Vatnaskóg og rifja upp gamlar minningar um eða kynnast Vatnaskógi. Það er tilvalið fyrir dæturnar að fara með pabba í Vatnaskóg og hafa það skemmtilegt með honum.

Verð í feðginaflokk er kr.11.900 fyrir einstakling. Skráning fer fram í síma 588-8899 eða á skraning.kfum.is.

Ekki verður rúta á staðinn, en ef einhver þarf far, vinsamlega látið vita í síma 588-8899.

Hér fyrir neðan eru upplýsingar um flokkinn ásamt dagskrá.

Verið velkomin og góða skemmtun!

Nauðsynlegur farangur: Sæng eða svefnpoki,  föt til skiptanna, íþróttaskó  til notkunar í íþróttahúsi og annað sem þið teljið nauðsynlegt. Einnig er gott að hafa sundföt með í för en heitu pottarnir heilla marga.

DAGSKRÁ:

Föstudagur 1. júní

19:00     Kvöldmatur

20:00     Dagskrá

– Gönguferð – Bátar

– Íþróttahúsið opið

21:30     Kvöldvaka í Gamla Skála

Kvöldhressing

 

Laugardagur 2. júní

8:30       Vakið

9:00       Morgunverður

9:30       Fræðslustund í Gamla skála

10:15     Pabbaspjall

– Fræðslustund fyrir feður – Dagskrá fyrir stúlkur í íþróttahúsi á sama tíma

12:00     Hádegisverður

13:00     Dagskrá

– Frjálsar íþróttir á íþróttavelli – Bátar – Smiðjan opnar – Skógarferð

15:00     Kaffi

15:45     Dagskrá

– Knattspyrna – Kassabílarall – Íþróttahúsið opið

18:45     Hátíðarkvöldverður – veislukvöld í Matskála

20:00     Kvöldvaka að hætti hússins

21:30     Helgistund í Lindarrjóðri

22:00     Kvöldhressing í Matskála

 

Sunnudagur 3. júní

9:00       Vakið

9:30       Morgunverður

10:00     Dagskrá

– Íþróttahúsið – Bátar – Smiðjan opin

12:30     Hádegisverður

13:00     Kveðjustund

14:00     Brottför