Fyrsti dagurinn byrjaði vel hér í Vatnaskógi í gær. Veðrið hefur leikið við okkur og drengirnir nutu sín vel á vatninu og í vatninu, úti á fótboltavelli og í frjálsum íþróttum auk þess sem við buðum upp á dagskrá í íþróttahúsinu og úti í skógi. Þá var smíðaverkstæðið okkar opið.

Kvöldið gekk vel hjá þeim flestum. Örfáir drengir fundu fyrir heimþrá, en allir náðu samt að sofna að lokum. Drengirnir vöknuðu mjög vel stemmdir og við stefnum að því að þeir nái allir að upplifa ævintýrin í Vatnaskógi í dag og sofni þreyttir og sáttir í kvöld. Hér fyrir neðan er smá fræðslutexti um heimþrá og nálgun okkar í Vatnaskógi í þessum flokki á slík mál. Það er rétt að ítreka að mjög fáir drengir í flokknum sýndu einhver merki um heimþrá í gærkvöldi og enginn ástæða fyrir foreldra að hafa áhyggjur ef við höfum ekki nú þegar haft samband.

Framundan í dag er gönguferð, frjálsar íþróttir, fótbolti, leikir af ýmsu tagi og vatnið verður áfram vinsælt enda er veðrið nú í morgunsárið yndislegt, þurrt, léttur andvari og sól.

Myndir frá fyrsta deginum eru á myndasvæði Vatnaskógar.

Fræðsluinnlegg dagsins
Þrátt fyrir að heimþrá hafi ekki mikil áhrif nema á mjög lítinn hluta drengjanna er við hæfi að skrifa örfá orð um hvernig þessi tilfinning lýsir sér. Heimþrá snýst um missi og er þannig nátengd sorg og viðbrögð drengjanna eru oft eins og skyndikúrs í sorgarviðbrögðum. Þeir hafa tilhneigingu til að koma með ásakanir, loka sig af, reiðast og nota samningatækni til að takast á við vanlíðan/sorgina. Oft fylgir líkamleg vanlíðan, oftast nær í tengslum við magann (eða meltingarkerfið) þó stundum birtist líkamlega vanlíðanin í hausverk eða stirðleika í liðum.

Fullorðnir einstaklingar þekkja væntanlega flest þessi einkenni, enda fullkomlega eðlileg viðbrögð við áfalli og breyttum aðstæðum. Fyrir marga drengina í sumarbúðum eru þessar sveiflukenndu og sterku tilfinningar hins vegar nýjar og jafnvel áður óþekktar, sem þeir vita ekki hvernig er rétt að taka á.

Í Vatnaskógi leggjum við áherslu á að takast á við þessar tilfinningar í samráði við foreldra, þegar tilfinningarnar hefta tækifæri drengjanna til að njóta dvalarinnar. Það að við höfum samband merkir samt alls ekki að við teljum að viðkomandi drengur þurfi að fara heim, heldur miklu fremur viljum að þekking foreldra á barninu nýtist til að hjálpa okkur að finna leiðir til að hjálpa barninu að njóta sín.

Aðferðafræðin í heimþrármálum hérna í Vatnaskógi þessa vikuna er sú að hjálpa barninu að brjótast út úr sorgarferlinu, sættast við umhverfi sitt og sjá tækifærin í dvölinni. Þannig viðurkennum við og skiljum tilfinningarnar en reynum að beina athygli þeirra frá vanlíðuninni að tækifærunum.

Við trúum því að þessi reynsla drengjanna, að láta ekki stjórnast af vanlíðan, þó þeir viðurkenni hana og gangist við henni, sé mikilvæg fyrir drengina og hjálpi þeim til að þroska tilfinningar sínar og andlegt atgervi. Við skiljum þó líka að stundum eru aðstæður, upplifun og tilfinningar drengjanna þess eðlis að þeir eru einfaldlega ekki tilbúnir til að takast á við dvölina og þurfa að vera skemur en áætlað var í upphafi.