Eftir skemmtilegt veislukvöld í gær voru strákarnir komnir í ró rétt fyrir kl. 23:00. Þrátt fyrir að það sé farið að síga á seinni hlutann í flokknum þá slökkum við ekkert á í dagskránni strax, en eftir morgunstund og Biblíulestur verður boðið upp á orustu sem er frumstæð sumarbúðaútgáfa af Lazer Tag og eins munu Stjörnu- og Draumalið flokksins etja kappi í knattspyrnu.

Eftir pizzuveislu í hádeginu fara drengirnir og pakka farangrinum sínum áður en lokastund hefst í Gamla skála kl. 14. Eftir lokastundina er síðan lengsti kaffitími vikunnar þar sem við auglýsum eftir eigendum af fötum í óskilum.

Rúturnar halda úr Vatnaskógi kl. 16:00 og er áætluð heimkoma við KFUM og KFUK húsið við Holtaveg um kl. 17. Þeir foreldrar sem sækja drengina í Vatnaskóg þurfa því að koma í síðasta lagi kl. 15:45.

Við í Vatnaskógi erum stöðugt að reyna að gera gott starf enn betra. Þess vegna viljum við endilega fá að vita um það sem drengjunum fannst ganga vel og eins það sem kannski var síðra. Ef drengirnir nefna eitthvað sérstakt eftir að þeir koma heim sem gæti hjálpað okkur til að gera ennþá betur, má endilega senda mér tölvupóst á elli@vatnaskogur.net eða hringja á skrifstofu KFUM og KFUK við Holtaveg.

Það eru komnar nokkrar myndir frá gærkvöldinu, en ætli ég sleppi ekki fræðsluinnleggi dagsins í dag.