Allt gengur mjög vel.  Í gærkvöldi var drengjunum komið á óvart eftir kvöldkaffi með dagskrártilboðum í stað háttatíma.  Boðið var uppá róðrakeppni, hungergames (eltingarleikur), skógarferð með varðeld og grilluðu brauði og opnu íþróttahúsi.  Tóku þeir þessu ævintýraflokkstilboði afar vel og voru í miklu stuði.  Að þessu loknu lögðust þeir þreyttir á koddann sinn og svifu á vit draumanna.  Fyrir vikið fengu þeir að sofa aðeins lengur í morgun, eða til kl. 09.00.  Veðrið leikur við okkur, hlýtt, stillt og fallegt veður.  Þeir eru virkir í fótboltanum, íþróttunum, á bátum, í listasmiðju, í gönguferð.  Nokkrir drengir fóru í hörkugönguferð í gær meðfram allri girðingunni og síðan kringum vatnið þar sem þeir óðu yfir báða ósana.

Dagurinn í dag lofar góðu.  Við munum njóta hans.