Fyrstu helgina í febrúar verður haldin fjölskylduflokkur í Vatnaskógi með fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá. Þetta er frábært tækifæri fyrir fjölskylduna að verja tíma saman og efla fjölskyldutengslin í notalegu andrúmslofti. Í flokknum er boðið upp á frábært umhverfi, afslappaða og uppbyggilega dagskrá, auk líflegra umræðna á fullorðinsstundum. Starfsmenn hugsa vel um þátttakendur, og kapp er lagt á að allir skemmti sér vel. Flokkurinn er opin fyrir alla aldurshópa.

Dagskráin hefst á kvöldverði kl. 19:00 á föstudeginum og miðað er við að fjölskyldur ferðist á einkabílum á staðinn, ekki er boðið upp á rútuferðir.

Verð er 9.500 kr. á mann en frítt er fyrir 6 ára og yngri. Hámarksverð fyrir fjölskyldu er 31. 500 kr.

Skráning er í Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK í síma 588 88899 eða í netfangið skrifstofa@kfum.is. Dagskrá verður auglýst síðar.

Farangur:
Vert er að vera vel búin/n til að njóta dvalarinnar sem best. Oft er fallegt í Vatnaskógi á veturna, en allra veðra er von á þessum árstíma. Rétt er að hafa búnað til útiveru, s.s. stígvél eða gönguskó, regngalla, hlý útiföt, föt til skiptanna, húfu, vettlinga, trefil, sundföt (fyrir þá sem vilja fara í heita potta), íþróttaskó og föt til notkunar í íþróttahúsi og annað sem hver og einn telur nauðsynlegt. Einnig þarf að vera með lak og svefnpoka eða sæng (og rúmföt).

Dagskrá:

Föstudagur 5. febrúar
18:00 Svæðið opnar –
gestir koma sér fyrir, hver fjölskylda finnur sér herbergi
19:00 Kvöldverður
20:00 Kvöldvaka í Gamla Skála
21:00 Frjáls tími
• Kvöldhressing
• Bænastund í kapellu
• Íþróttahúsið opið

Laugardagur 6. febrúar
08:30 Vakið
09:00 Morgunverður
09:30 Morgunstund
• Biblíulestur
• Fræðslustund foreldra umsjón: Davíð Örn Sveinbjörnsson
• Leikstund
• Íþróttahúsið opið
• Föndursmiðjan opin
12:00 Hádegismatur
13:00 Frjáls tími
• Gönguferð – Oddakot og klettarnir skoðaðir
• Föndursmiðjan
• Íþróttahúsið opið
15:00 Síðdegiskaffi
15:30 Frjáls tími
• Kassabílar
• Íþróttir og leikir í íþróttahúsi
• Undirbúningur f. hæfileikasýningu á kvöldvöku
• Heitir pottar við íþróttahús
18:30 Hátíðarkvöldverður – veislukvöld
19:30 Kvöldvaka
21:00 Frjáls tími
• Kvöldhressing
• Kvöldganga / Bænastund
• Afslöppun í sal Birkiskála

Sunnudagur 7. febrúar
Frá kl. 09:00 – 10:30 Morgunverður
10:00 Íþróttahúsið opið
10:30 Útivera
11:45  Lokastund
12:30 Hádegismatur
• Brottför