Nú líður að lokum enn eins frábærs flokks í Vatnaskógi. Í gærdag var boðið upp á vandaða dagskrá auk þess sem strákarnir voru hvattir til að fara í sturtu og klæða sig í betri fötin fyrir veislukvöldvökuna. Hópur drengja atti kappi við foringja flokksins í knattspyrnuleik sem endaði 5-5, listasmiðjan fylltist af áhugasömum listamönnum svo mjög að drengirnir þurftu um tíma að bíða í röð til að komast að og drengirnir skemmtu sér vel á kvöldvöku.

Í dag verða drengirnir vaktir kl. 9 og að loknum morgunverði verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá fram undir hádegi. Eftir hádegismat munu drengirnir svo pakka farangrinum sínum og halda að því loknu í Skógarmannamessu í kvöldvökusal Gamla skála. Eftir það munu drengirnir fá síðdegishressingu og auk þess munum við gefa okkur góðan tíma til að auglýsa óskilaföt áður en drengirnir fara í rúturnar.

Rúturnar til Reykjavíkur munu leggja af stað um kl. 15:50 og er áætluð heimkoma við KFUM og KFUK húsið við Holtaveg í Reykjavík um kl. 16:50 ef allt gengur eftir áætlun.

Mikilvægt er að foreldrar sem hyggjast sækja börnin sín í Vatnaskóg á morgun komi á svæðið ekki mikið seinna en kl. 15:30.

Að mínu mati hefur þessi vika í Vatnaskógi gengið mjög vel, þó veðrið hafi ekki alltaf leikið við okkur og vissulega megi alltaf gera betur. Eins og ég hef áður sagt þá leitumst við stöðugt að því að gera gott starf betra og ef þú hefur ábendingar, athugasemdir eða vilt hafa samband við okkur starfsfólkið í 4. flokki í Vatnaskógi getur þú sent tölvupóst á elli@vatnaskogur.net.

Með kærri þökk fyrir það traust
sem þið foreldrar hafa sýnt okkur starfsfólkinu
með því að senda drengina hingað í Vatnaskóg,

Halldór Elías Guðmundsson

E.s. Myndir frá 4. flokki í Vatnaskógi birtast á vefslóðinni https://www.flickr.com/photos/kfum-kfuk-island/albums/72157669774466071.