Nú líður að lokum enn eins flokksins í Vatnaskógi. Nú í kvöld (þriðjudag) var boðið upp á vandaða dagskrá auk þess sem strákarnir voru hvattir til að fara í sturtu og klæða sig í betri fötin fyrir veislukvöldvökuna. Hópur drengja atti kappi við foringja flokksins í knattspyrnuleik sem endaði 5-4 fyrir foringja (eða 5-5 ef þú spyrð drengina), boðið var upp á dagskrá í íþróttahúsinu, bátarnir voru opnir, drengirnir kepptu sumir í brekkuhlaupi og aðrir í hungurleikunum.

Lokadaginn verða drengirnir vaktir kl. 8:30 og að loknum morgunverði verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá fram undir hádegi. Eftir hádegismat munu drengirnir svo pakka farangrinum sínum, taka þátt í æsispennandi ævintýraleik og taka þátt í stuttri lokastund. Að því loknu munu drengirnir fá síðdegishressingu og auk þess munum við gefa okkur góðan tíma til að auglýsa óskilaföt áður en drengirnir fara í rúturnar.

Rútan til Reykjavíkur munu leggja af stað um kl. 15:55 og er áætluð heimkoma við KFUM og KFUK húsið við Holtaveg í Reykjavík um kl. 16:55 ef allt gengur eftir áætlun.

Mikilvægt er að foreldrar sem hyggjast sækja börnin sín í Vatnaskóg á morgun komi á svæðið ekki mikið seinna en kl. 15:30.

Myndir úr 7. flokki

Að mínu mati hefur þessi vika í Vatnaskógi gengið mjög vel, þó vissulega megi alltaf gera betur. Eins og ég hef áður sagt þá leitumst við stöðugt að því að gera gott starf betra og ef þú hefur ábendingar, athugasemdir eða vilt hafa samband við okkur starfsfólkið í 7. flokki í Vatnaskógi getur þú sent tölvupóst á elli@vatnaskogur.net.

Með kærri þökk fyrir það traust
sem þið foreldrar hafa sýnt okkur starfsfólkinu
með því að senda drengina hingað í Vatnaskóg,
Halldór Elías Guðmundsson