Í dag er veisludagur í Vatnaskógi. Á veisludegi er boðið upp á síðustu greinarnar í frjálsíþróttamótinu okkar, lokaleikir Skeljungsbikarkeppninnar í knattspyrnu eru spilaðir, boðið er upp á fjölbreytta dagskrá að vanda í íþróttahúsinu. Drengirnir eru hvattir til þess að ljúka við listaverk fyrir listakeppnina og bent á að ljúka við smíðastykkin sín á smíðaverkstæðinu.

Síðar í dag verður knattspyrnuleikur milli úrvalsliðs drengja og foringja, drengirnir verða hvattir til að fara í sturtu og snyrtilegri föt og loks hefst veislukvöld kl. 18:30. Boðið verður upp á dýrindismat, drengirnir taka við viðurkenningum fyrir árangur í þeim fjölda móta sem eru í gangi í hverri viku, Sjónvarp Lindarrjóður verður með útsendingu, lokakafli framhaldssögunnar um Najac verður lesin og drengirnir heyra síðustu Biblíusögu vikunnar.

Öðru hvoru nefna foreldrar við mig að þeir vildu óska þess að þau gætu komið upp í Vatnaskóg og kynnst staðnum sem hefur jafn stóran sess í hjarta drengjanna þeirra og raun ber oft vitni. Mig langar af þeim sökum að benda á tvö frábær tækifæri sem Vatnaskógur býður upp á fyrir fjölskyldur. Annars vegar er vert að minnast á fjölskylduflokka sem eru nokkrum sinnum á ári í skóginum og hins vegar langar mig að benda á Sæludaga um Verslunarmannahelgina sem er vímuefnalaus hátíð hér í Vatnaskógi með fjölbreyttri dagskrá fyrir alla fjölskylduna.

Myndir úr 7. flokki

Það er metnaður okkar sem störfum í Vatnaskógi að gera gott starf enn betra. Ef þú hefur ábendingar, athugasemdir eða vilt hafa samband við okkur hér í Vatnaskógi getur þú sent tölvupóst á elli@vatnaskogur.net.

Með kveðju úr Skóginum,
Halldór Elías Guðmundsson