Fjórði flokkur í Vatnaskógi hefst í fyrramálið, fyrsti ævintýraflokkur sumarsins. Á svæðinu verða rétt um 100 drengir og tæplega tuttugu starfsmenn á öllum aldri. Fyrir drengi sem eru ennþá að skipuleggja ferðina og pakka með aðstoð foreldra eða forráðamanna, þá eru allar helstu upplýsingar á slóðinni http://www.kfum.is/vatnaskogur/vatnaskogur-upplysingar-fyrir-foreldra-og-forradamenn/

Foringjar í 4. flokki sem annast dagskrá og umönnun drengjanna eru Birkir Bjarnason, Ögmundur Ísak Ögmundsson, Dagur Adam Ólafsson, Eiríkur Skúli Gústafsson, Benjamín Gísli Einarsson, Gunnar Hrafn Sveinsson, Matthías Guðmundsson, Þráinn Andreuson og Ísak Henningsson.

Eldhúsi og þrifum er stýrt af Ingibjörgu Lóreley Zimsen Friðriksdóttur en henni til aðstoðar eru Hjalti Jóel Magnússon, Gríma Katrín Ólafsdóttir og Anna Laufey Halldórsdóttir. Þess utan verða þrír matvinnungar á svæðinu, ungir framtíðarleiðtogar sem grípa í hvers kyns verkefni á svæðinu, hvort sem það er aðstoð í gönguferðum, uppvask, smíðar eða skipulag leikja undir umsjón foringja, þau Benedikt Guðmundsson, Salóme Pálsdóttir og Davíð Guðmundsson. Þá verður Þórir Sigurðsson í flokknum og kemur að ýmsu daglegu viðhaldi á tækjum og húsnæði

Yfirumsjón með öllu sem fram fer í Vatnaskógi þessa vikuna er síðan í mínum höndum, ég heiti Halldór Elías Guðmundsson kallaður Elli, en í ár eru 27 ár sumur síðan ég var fyrst starfsmaður í Vatnaskógi og 37 sumur síðan ég var fyrst drengur í flokk.

Hægt er að smella á nöfn flestra starfsmanna í listanum hér fyrir ofan til að fá frekari upplýsingar um viðkomandi starfsmann.

Ef þú þarft að hafa samband við okkur í Vatnaskógi, er hægt að senda tölvupóst á netfangið elli@vatnaskogur.net.

Myndin sem fylgir færslunni er frá árinu 2016. Á henni eru nokkrir starfsmenn sem ekki verða í 4. flokki 2017.