Í gær mættu tæplega 100 drengir á aldrinum 9-11 ára í Vatnaskóg. Fyrsta ævintýrið í flokknum fyrir suma var að flýta sér út á bát eftir hádegismatinn og uppgötva að það er ekki nóg að segjast kunna að róa þegar farið er út á árabát. Starfsmenn við bátanna hjálpuðu þó öllum í land fljótt og vel sem þurftu á hjálpinni að halda.

Annars tóku drengirnir virkan þátt í allri dagskrá, boðið var upp á útileiki, knattspyrnu, kúluvarp, spil, báta, smíðaverkstæði svo fátt sé nefnt. Dagurinn endaði svo á frábærri kvöldvöku þar sem drengirnir hlustuðu vel, hlógu mikið og sungu af krafti þegar það átti við.

Dagurinn í dag byrjar vel. Á morgunstund í morgun var rætt um mikilvægi Biblíunnar og þá sér í lagi Gamla Testamentisins, ekki einvörðungu sem eitt trúarrita eingyðistrúarbragðanna þriggja við botni Miðjarðarhafs, heldur menningarmótandi rits og trúaráttavita kristinna manna. Að því loknu var skipt í hópa og drengirnir fóru hver með sínum foringja að æfa sig í að fletta upp og leita í Biblíunni eftir ákveðnum textum.

Framundan fram að hádegi er langstökk án atrennu, smíðaverkstæðið er opið sem og bátarnir, fótboltaspilsmót er í gangi í íþróttahúsinu og kassabílarallý við Gamla skála. Þá fengju drengirnir hvatningu um að fara í rannsóknarleiðangra út í skóg og kynnast náttúrunni í kringum staðinn.

Allar myndir úr flokknum má finna á slóðinni https://www.flickr.com/photos/kfum-kfuk-island/albums/72157683478994161

Það er metnaður okkar sem störfum í Vatnaskógi að gera gott starf enn betra. Ef þú hefur ábendingar, athugasemdir eða vilt hafa samband við okkur hér í Vatnaskógi getur þú sent tölvupóst á elli@vatnaskogur.net.


Fræðsluinnlegg að lokum fyrsta dags – Heimþrá

Í þessum flokki hefur enn sem komið er ekki borið mikið á heimþrá, þó vissulega séu alltaf einhver tilvik í stórum hópi. Þó þykir mér mikilvægt að útskýra fyrir þeim foreldrum sem áhuga hafa hvaða hugmyndafræði og nálgun við aðhyllumst í þessum flokki í Vatnaskógi í tengslum við heimþrá. Því er hér smá innlegg.

Þrátt fyrir að heimþrá hafi ekki mikil áhrif nema á mjög lítinn hluta drengjanna er heimþrá mikilvæg tilfinning og getur snert okkur öll. Heimþrá snýst um missi og er þannig nátengd sorg og viðbrögð drengjanna eru oft eins og skyndikúrs í sorgarviðbrögðum. Þegar heimþrá nær tökum á drengjunum, geta þeir komið með ásakanir, lokað sig af, reiðst og notað samningatækni til að takast á við vanlíðan/sorgina. Á stundum fylgir líkamleg vanlíðan, oftast nær í tengslum við magann (eða meltingarkerfið) þó stundum birtist líkamlega vanlíðanin í hausverk eða stirðleika í liðum.

Fullorðnir einstaklingar þekkja væntanlega flest þessi einkenni, enda fullkomlega eðlileg viðbrögð við áfalli og breyttum aðstæðum. Fyrir marga drengina í sumarbúðum eru þessar sveiflukenndu og sterku tilfinningar hins vegar nýjar og jafnvel áður óþekktar, sem þeir vita ekki hvernig er hægt að takast á við.

Í Vatnaskógi leggjum við áherslu á að takast á við þessar tilfinningar í samráði við foreldra og höfum samband strax og við teljum að  tilfinningarnar hefti tækifæri drengjanna til að njóta dvalarinnar. Það að við höfum samband merkir samt alls ekki að við teljum að viðkomandi drengur þurfi að fara heim, heldur miklu fremur viljum við að þekking foreldra á barninu nýtist til að hjálpa okkur að finna leiðir til að leyfa barninu að njóta sín.

Aðferðafræðin í heimþrármálum hérna í Vatnaskógi þessa vikuna er sú að hjálpa barninu að brjótast út úr sorgarferlinu, sættast við umhverfi sitt og sjá tækifærin í dvölinni. Þannig viðurkennum við og skiljum tilfinningarnar en reynum að beina athygli þeirra frá vanlíðuninni að tækifærunum.

Við trúum því að þessi reynsla drengjanna, að láta ekki stjórnast af vanlíðan, þó þeir viðurkenni hana og gangist við henni, sé mikilvæg fyrir drengina og hjálpi þeim til að þroska tilfinningar sínar og andlegt atgervi. Við skiljum þó líka að það getur gerst að aðstæður, upplifun og tilfinningar drengjanna séu þess eðlis að þeir eru einfaldlega ekki tilbúnir til að takast á við dvölina og þurfa að vera skemur en áætlað var í upphafi. Það gerist þó mjög sjaldan.