Dagskráin í gær var fjölbreytt að venju. Smíðaverkstæðið hefur verið mjög vinsælt hjá drengjunum. Þá voru bátarnir opnir hluta dags og meðal annarra verkefna má nefna fótbolta og skotbolta, spilastund, ævintýraleik með þátttöku allra ásamt 100 drengja „Einnar krónu“.

Framundan í dag er síðan hin sívinsæli hermannaleikur og heimsókn úr sumarbúðunum í Ölveri.

Í tengslum við hermannaleikinn er mikilvægt að taka fram að hér í Vatnaskógi hefur verið misvirk umræða í yfir 16 ár milli starfsfólks um hvort leikurinn sé viðeigandi í kristilegum sumarbúðum, m.a. vegna nafnsins og þess hvort hann ýti undir stríðshetjudýrkun. Þannig var hluti starfsmannanámskeiðs vorið 2001, notaðar í umræður um kosti og galla leiksins. Síðan þá hefur umræðan verið tekin upp reglulega.

Í þessu samhengi er rétt að taka fram að hernaðartengt tungutak á sér langa hefð í sögu KFUM og KFUK á Íslandi meðal annars í sálmum eins og Áfram Kristsmenn Krossmenn og Sjáið merkið, Kristur kemur. Þrátt fyrir að ég stýrt mjög gagnrýnum umræðum fyrir nær 16 árum þá er leikurinn enn hluti af dagskránni hjá okkur og verður í boði eftir hádegi með þátttöku allra drengjanna á staðnum, enda er fjörið og stemmningin gífurlega mikil fyrir þessari hefð í starfinu.

Hermannaleikurinn er í raun aðeins tveggja liða eltingarleikur, þar sem hvort lið um sig fær armband og klemmur á upphandlegg og drengirnir keppast um að kippa klemmunum hvor af öðrum án þess að meiða andstæðinginn. Ef drengirnir missa klemmuna, geta þeir haldið heim á bækistöð liðs síns, fengið nýja klemmu og haldið áfram leiknum. Það lið sem safnar fleiri klemmum sigrar.

Meðvitund starfsmanna um gagnrýni á leikinn og þátttaka í umræðum um kosti og galla þess að bjóða upp á þennan dagskrárlið er dæmi um spennandi og gróskumikla umræðu meðal starfsmanna sem leitast stöðugt við að bæta starfið í sumarbúðunum. Einhverjum kann að finnast að rétt niðurstaða skipti meira máli en hvernig staðið er að umræðunni, það er hins vegar mín trú að vönduð lýðræðisleg umræða sé að öðru jöfnu grundvallarforsenda þess að starfið í Skóginum þróist á sem bestan veg.

Allar myndir úr flokknum má finna á slóðinni https://www.flickr.com/photos/kfum-kfuk-island/albums/72157683478994161

Það er metnaður okkar sem störfum í Vatnaskógi að gera gott starf enn betra. Ef þú hefur ábendingar, athugasemdir eða vilt hafa samband við okkur hér í Vatnaskógi getur þú sent tölvupóst á elli@vatnaskogur.net.