Á morgun er síðasti dagur 6. flokks þetta árið. Drengirnir verða vaktir 30 mínútum seinna en venjulega, eða kl. 9:00. Morgunmatur hefst kl. 9:30 og að honum loknum er fánahylling og morgunstund

Eftir morgunstund tekur við frjáls tími fram að hádegismat kl. 12:00, drengirnir pakka og ganga frá farangrinum sínum eftir matinn. Kl. 13:30 hefst útileikjadagskrá með spennandi hópleikjum og síðan verður boðið upp á lokastund í Gamla skála þar sem horft verður á stuttmyndina „Áfram að markinu“. Drengirnir fá kaffihressingu kl. 15:00 og í kjölfarið auglýsir starfsfólkið óskilaföt sem hafa fundist á víð og dreif um Vatnaskóg þessa viku.

Rúturnar leggja af stað til Reykjavíkur um kl. 15:55 og foreldrar sem hyggjast sækja börnin sín þurfa að vera komin á svæðið í síðasta lagi kl. 15:45. Ef drengirnir verða sóttir er mikilvægt að við vitum það í tíma svo drengirnir geti sett farangurinn sinn til hliðar og hann fari ekki í rútuna.

Myndir úr flokknum eru á slóðinni https://www.flickr.com/photos/kfum-kfuk-island/albums/72157683372473873.

Þetta er síðasta færslan frá 6. flokki 2017. Við sem störfum í Vatnaskógi erum þakklát fyrir það traust sem foreldrar sína okkur með því að senda börn sín í sumarbúðir og tökum það traust alvarlega. Það er metnaður okkar sem störfum í Vatnaskógi að gera gott starf enn betra.

Ef þú hefur ábendingar, athugasemdir eða vilt hafa samband við okkur hér í Vatnaskógi í tengslum við 6. flokk getur þú sent tölvupóst á elli@vatnaskogur.net eða haft samband við skrifstofu KFUM og KFUK í Reykjavík, sími 588 8899.