Áttundi flokkur í Vatnaskógi hefst í fyrramálið. Á svæðinu verða tæplega 80 drengir og rétt um tuttugu starfsmenn á öllum aldri. Fyrir foreldra og forráðamenn sem eru ennþá að skipuleggja ferðina og pakka með aðstoð drengjanna, þá eru allar helstu upplýsingar á slóðinni http://www.kfum.is/vatnaskogur/vatnaskogur-upplysingar-fyrir-foreldra-og-forradamenn/

Foringjar í 8. flokki sem annast dagskrá og umönnun drengjanna eru Ástráður Sigurðsson, Birkir Bjarnason, Benjamín Pálsson, Benjamín Gísli Einarsson, Matthías Guðmundsson, Þráinn Andreuson og Gunnar Hrafn Sveinsson.

Eldhúsi og þrifum er stýrt af Ingibjörgu Lóreley Zimsen Friðriksdóttur en henni til aðstoðar eru Gunnhildur Einarsdóttir, Agnes Þorkelsdóttir, Anna Laufey Halldórsdóttir og Unnur Rún Sveinsdóttir. Þess utan verða nokkrir matvinnungar á svæðinu, ungir framtíðarleiðtogar sem koma sem sjálfboðaliðar í skóginn og grípa í hvers kyns verkefni á svæðinu, hvort sem það er aðstoð í gönguferðum, uppvask, smíðar, frágangur og tiltekt á svæðinu eða skipulag leikja undir umsjón foringja. Matvinnungar þessarar viku eru Kristinn Sigurðsson, Fannar Logi Hannesson, Björn Kristinn Jóhannsson, Jóel Kristjánsson, Brynjar Karl Guðmundsson, Hálfdán Helgi Matthíasson og Benedikt Guðmundsson.

Þá verða Gríma Katrín Ólafsdóttir, Þórir Sigurðsson og Sigurður Jóhannesson í flokknum og koma að ýmsu daglegu viðhaldi á tækjum og húsnæði.

Yfirumsjón með öllu sem fram fer í Vatnaskógi þessa vikuna er síðan í mínum höndum, ég heiti Halldór Elías Guðmundsson kallaður Elli, en í ár eru 27 sumur síðan ég var fyrst starfsmaður í Vatnaskógi og 37 sumur síðan ég var fyrst drengur í flokk.

Hægt er að smella á nöfn margra starfsmanna í listanum hér fyrir ofan til að fá frekari upplýsingar um viðkomandi starfsmann.

Hægt er að sjá ljósmyndir frá 8. flokki á slóðinni: https://www.flickr.com/photos/kfum-kfuk-island/albums/72157683821629314

Ef þú þarft að hafa samband við okkur í Vatnaskógi, er hægt að senda tölvupóst á netfangið elli@vatnaskogur.net.