Í dag er síðasti dagur 8. flokks þetta árið. Drengirnir verða vaktir 30 mínútum seinna en venjulega, eða kl. 9:00. Morgunmatur hefst kl. 9:30 og að honum loknum er fánahylling og morgunstund þar sem við munum sjá stuttmyndina „Áfram að markinu“, en hún var gerð 2013 í tilefni 90 ára afmælis starfsins í Vatnaskógi.

Eftir morgunstund, munu drengirnir pakka og ganga frá farangrinum sínum og síðan tekur við frjáls tími fram að hádegismat kl. 12:00. Eftir hádegismat hefst útileikjadagskrá með spennandi dagskrá og síðan verður boðið upp á lokastund í Skógarkirkju um kl. 14:30. Drengirnir fá kaffihressingu kl. 15:00 og í kjölfarið auglýsir starfsfólkið óskilaföt sem hafa fundist á víð og dreif um Vatnaskóg þessa viku.

Rúturnar leggja af stað til Reykjavíkur um kl. 15:55 og foreldrar sem hyggjast sækja börnin sín þurfa að vera komin á svæðið í síðasta lagi kl. 15:45. Ef drengirnir verða sóttir er mikilvægt að við vitum það í tíma svo drengirnir geti sett farangurinn sinn til hliðar og hann fari ekki í rútuna.

Hægt er að sjá ljósmyndir frá 8. flokki á slóðinni: https://www.flickr.com/photos/kfum-kfuk-island/albums/72157683821629314.

Þetta er síðasta færslan frá 8. flokki 2017. Við sem störfum í Vatnaskógi erum þakklát fyrir það traust sem foreldrar sína okkur með því að senda börn sín í sumarbúðir og tökum það traust alvarlega. Það er metnaður okkar sem störfum í Vatnaskógi að gera gott starf enn betra.

Ef þú hefur ábendingar, athugasemdir eða vilt hafa samband við okkur hér í Vatnaskógi í tengslum við 8. flokk getur þú sent tölvupóst á elli@vatnaskogur.net eða haft samband við skrifstofu KFUM og KFUK í Reykjavík, sími 588 8899.