Stúlknaflokkur Vatnaskógar hófst í dag. Á svæðinu verða 24 stúlkur og rúmlega 10 starfsmenn á öllum aldri.

Foringjar í stúlknaflokki sem annast dagskrá og umönnun stúlknanna eru Birkir Bjarnason, Gríma Katrín Ólafsdóttir, Hrafnhildur Emma Björnsdóttir og Dagur Adam Ólafsson.

Eldhúsi og þrifum er stýrt af Hugrúnu Lenu Hansdóttur en henni til aðstoðar eru Gunnhildur Einarsdóttir og Benjamín Gísli Einarsson.

Þess utan er einn matvinnungur á svæðinu, ungur framtíðarleiðtogi í starfi KFUM og KFUK sem kemur sem sjálfboðaliði í skóginn og grípur í hvers kyns verkefni á svæðinu, hvort sem það er aðstoð í gönguferðum, uppvask, smíðar, frágangur og tiltekt á svæðinu eða skipulag leikja undir umsjón foringja. Matvinnungur þessarar viku er Birta Lind Guðmundsdóttir.

Þá verða Þórir Sigurðsson og Sigurður Jóhannesson í flokknum og koma að ýmsu daglegu viðhaldi á tækjum og húsnæði.

Yfirumsjón með öllu sem fram fer í Vatnaskógi þessa vikuna er síðan í mínum höndum, ég heiti Halldór Elías Guðmundsson kallaður Elli, en í ár eru 27 sumur síðan ég var fyrst starfsmaður í Vatnaskógi og 37 sumur síðan ég var fyrst drengur í flokk.

Hægt er að smella á nöfn margra starfsmanna í listanum hér fyrir ofan til að fá frekari upplýsingar um viðkomandi starfsmann.

Ef þú þarft að hafa samband við okkur í Vatnaskógi, er hægt að senda tölvupóst á netfangið elli@vatnaskogur.net.