Í dag er síðasti dagur stúlknaflokks í Vatnaskógi þetta árið. Stúlkurnar verða vaktar 30 mínútum seinna en venjulega, eða kl. 9:00. Morgunmatur hefst kl. 9:30 og að honum loknum er fánahylling og morgunstund þar sem við munum sjá stuttmyndina „Áfram að markinu“, en hún var gerð 2013 í tilefni 90 ára afmælis starfsins í Vatnaskógi.

Eftir morgunstund, munu stúlkurnar pakka og ganga frá farangrinum sínum og síðan tekur við frjáls tími fram að hádegismat kl. 12:00. Eftir hádegismat hefst spennandi útileikjadagskrá og síðan verður boðið upp á lokastund um kl. 14:30. Stúlkurnar fá kaffihressingu kl. 15:00 og í kjölfarið auglýsir starfsfólkið óskilaföt sem hafa fundist á víð og dreif um Vatnaskóg þessa viku.

Rúturnar leggja af stað til Reykjavíkur um kl. 15:55 og koma að KFUM og KFUK húsinu við Holtaveg rétt um kl. 17:00. Foreldrar sem hyggjast sækja börnin sín upp í Vatnaskóg þurfa að vera komin á svæðið í síðasta lagi kl. 15:45. Ef stúlkurnar verða sóttar upp í Vatnaskóg er mikilvægt að við vitum það í tíma svo stúlkurnar geti sett farangurinn sinn til hliðar og hann fari ekki í rútuna.

Myndir úr stúlknaflokki í Vatnaskógi 2017 eru á slóðinni https://www.flickr.com/photos/kfum-kfuk-island/albums/72157686869841375. Myndirnar eru teknar á tvær mismunandi myndavélar og koma því ekki alltaf í réttri tímaröð.

Ef þú hefur ábendingar, athugasemdir eða vilt hafa samband við okkur hér í Vatnaskógi í tengslum við stúlknaflokkinn getur þú sent tölvupóst á elli@vatnaskogur.net eða haft samband við skrifstofu KFUM og KFUK í Reykjavík, sími 588 8899.