Þriðji flokkur Vatnaskógar hefst í fyrramálið þegar rétt um 100 drengir mæta á svæðið. Mæting við rútuna úr Reykjavík er kl 9:30 og brottför er kl 10:00.

Foringjar sem annast dagskrá og umönnun drengjanna eru Gunnar Hrafn Sveinsson, Benjamín Pálsson. Matthías Guðmundsson, Bogi Benediktsson, Kári Þór Arnarsson, Baldur Ólafsson, Þráinn Andreuson, Benedikt Guðmundsson og Ísak Henningsson.

Eldhúsi og þrifum er stýrt af Ingibjörgu Lóreley Zimsen Friðriksdóttur en henni til aðstoðar verða Gunnhildur Einarsdóttir, Anna Laufey Halldórsdóttir, Salóme Pálsdóttir, Ástráður Sigurðsson og Fannar Hannesson.

Þess utan eru ungir matvinnungar á svæðinu, framtíðarleiðtogar í starfi KFUM og KFUK sem koma sem sjálfboðaliðar í skóginn og grípa í hvers kyns verkefni á svæðinu, hvort sem það er aðstoð í gönguferðum, uppvask, smíðar, frágangur og tiltekt á svæðinu eða skipulag leikja undir umsjón foringja. Matvinnungar þessa vikuna verða m.a. Ísak Jón Einarsson, Aníta Eir og Alexander.

Þá verða Þórir Sigurðsson og Sigurður Jóhannesson í flokknum og koma að ýmsu daglegu viðhaldi á tækjum og húsnæði.

Yfirumsjón með öllu sem fram fer í Vatnaskógi þessa vikuna er síðan í mínum höndum, ég heiti Halldór Elías Guðmundsson kallaður Elli, en í ár eru 28 sumur síðan ég var fyrst starfsmaður í Vatnaskógi og 37 sumur síðan ég var fyrst drengur í flokk. (Nánar um Halldór).

Við stefnum að því að birta fréttir úr Vatnaskógi hvern dag rétt fyrir hádegi með helstu upplýsingum um hvað er að gerast í skóginum. Fyrsta frétt verður birt á miðvikudag. Ef þú þarft að hafa samband við okkur í Vatnaskógi, er hægt að senda tölvupóst á netfangið elli@vatnaskogur.net.