Fjórði flokkur Vatnaskógar er rétt nýhafin en 87 drengir verða í Skóginum þessa vikuna.

Foringjar sem annast dagskrá og umönnun drengjanna eru Gunnar Hrafn Sveinsson, Benjamín Pálsson, Matthías Guðmundsson, Kári Þór Arnarsson, Þráinn Andreuson, Davíð Guðmundsson og Ástráður Sigurðsson. Þá verður þeim til halds og trausts Styrmir Magnússon félagsráðgjafi.

Eldhúsi og þrifum er stýrt af Ingibjörgu Lóreley Zimsen Friðriksdóttur en henni til aðstoðar verða Gunnhildur Einarsdóttir, Anna Laufey Halldórsdóttir, Salóme Pálsdóttir og Fannar Hannesson.

Þess utan eru ungir matvinnungar á svæðinu, framtíðarleiðtogar í starfi KFUM og KFUK sem koma sem sjálfboðaliðar í skóginn og grípa í hvers kyns verkefni á svæðinu, hvort sem það er aðstoð í gönguferðum, uppvask, smíðar, frágangur og tiltekt á svæðinu eða skipulag leikja undir umsjón foringja. Matvinnungar þessa vikuna verða m.a. Jóel Kristjánsson, Birta Hannesardóttir og Eva Sigurðardóttir.

Þá verða Þórir Sigurðsson og Sigurður Jóhannesson í flokknum og koma að ýmsu daglegu viðhaldi á tækjum og húsnæði.

Yfirumsjón með öllu sem fram fer í Vatnaskógi þessa vikuna er síðan í mínum höndum, ég heiti Halldór Elías Guðmundsson kallaður Elli, en í ár eru 28 sumur síðan ég var fyrst starfsmaður í Vatnaskógi og 37 sumur síðan ég var fyrst drengur í flokk. (Nánar um Halldór).

Við stefnum að því að birta fréttir úr Vatnaskógi hvern dag rétt fyrir hádegi með helstu upplýsingum um hvað er að gerast í skóginum. Fyrsta frétt verður birt á þriðjudag. Ef þú þarft að hafa samband við okkur í Vatnaskógi, er hægt að senda tölvupóst á netfangið elli@vatnaskogur.net.