Í dag, föstudag 13. júlí, er síðasti dagur 6. flokks þetta árið. Eftir viðburðaríkt veislukvöld í gærkvöldi verða drengirnir vaktir kl. 9:00. Morgunmatur hefst kl. 9:30 og að honum loknum er fánahylling og Skógarmannaguðsþjónusta. Að henni lokinni munu drengirnir pakka og ganga frá farangri sínum fyrir hádegismat kl. 12:00.

Eftir hádegisverð verður boðið upp á fjölbreytta og spennandi dagskrá fram að lokasamveru flokksins sem hefst um kl. 14:30. Drengirnir fá kaffihressingu kl. 15:15 og í kjölfarið auglýsir starfsfólkið óskilaföt sem hafa fundist á víð og dreif um Vatnaskóg þessa viku.

Rúturnar leggja af stað til Reykjavíkur um kl. 15:55 og foreldrar sem hyggjast sækja börnin sín upp í Vatnaskóg þurfa að vera komin á svæðið í síðasta lagi kl. 15:45. Ef drengirnir verða sóttir er mikilvægt að við vitum það í tíma svo drengirnir geti sett farangurinn sinn til hliðar og hann fari ekki í rútuna. Rúturnar kom að KFUM og KFUK húsinu í Reykjavík rétt um kl. 17:00.

Myndir frá flokknum birtast á slóðinni https://www.flickr.com/photos/kfum-kfuk-island/albums/72157668955720317.

Þetta er síðasta færslan frá 6. flokki 2018. Við sem störfum í Vatnaskógi erum þakklát fyrir það traust sem foreldrar sína okkur með því að senda börn sín í sumarbúðir og tökum það traust alvarlega. Það er og metnaður okkar sem störfum í Vatnaskógi að gera gott starf enn betra. Ef þú hefur ábendingar, athugasemdir eða vilt hafa samband við okkur hér í Vatnaskógi í tengslum við 6. flokk getur þú sent tölvupóst á elli@vatnaskogur.net eða haft samband við skrifstofu KFUM og KFUK í Reykjavík, sími 588 8899.