Í gær komu um 100 drengir í 2. flokk Vatnaskógar og munu dvelja í Skóginum fram til 17. júní.

Foringjar sem annast dagskrá og umönnun drengjanna eru Eiríkur Gústafsson, Friðrik Páll Ragnarsson Schram, Davíð Guðmundsson, Ísak Jón Einarsson, Gunnar Hrafn Sveinsson, Hreinn Pálsson og Þráinn Andreuson. Þeim til halds og trausts eru þeir Baldur Ólafsson, Ólafur Gunnar Long og forstöðumenn flokksins þeir Pétur Ragnarsson og Ársæll Aðalbergsson.

Eldhúsi og þrifum er stýrt af Ingibjörgu L Friðriksdóttur en henni til aðstoðar eru Fannar Hannesson, Gestur Daníelsson, Hákon Arnar Jónsson og Salóme Pálsdóttir.

Þess utan eru ungir matvinnungar á svæðinu, framtíðarleiðtogar í starfi KFUM og KFUK sem koma sem sjálfboðaliðar og grípa í hvers kyns verkefni á svæðinu, hvort sem það er aðstoð í gönguferðum, uppvask, smíðar, frágangur og tiltekt á svæðinu eða skipulag leikja undir umsjón foringja. Matvinnungar þessa vikuna eru þau Ásta Isabella Kent, Alice Viktoria Kent, Guðmundur Tómas Magnússon, Gunnar Þór Valdimarsson og Andri Freyr Gilbertsson.

Þá eru þeir Matthías Guðmundsson, Sigurður Jóhannesson og Þórir Sigurðsson í flokknum og koma að ýmsu daglegu viðhaldi á tækjum og húsnæði.

Allt gengur mjög vel, hressir og skemmtilegir drengir og duglegir að taka þátt í því sem í boði er, útileikir, keppnir í ýmsum greinum frjálsra íþrótta sem og skemmitlegir innleikir að ógleymdir smíðastofunni. Þá er knattspyrnumótið í fullum gangi.

Veðrið: Búið að vera gott veður, sól, hlýtt, þurrt en nokkur vindur þessa tvo fyrstu daga. Ekki gott bátaveður.

Maturinn: Í gær (fimmtud.) var boðið uppá sænskar kjötbollur, og skyr í kvöldmat, í dag (föstud.) var fisk í raspi og franskar í hád. og pylsur í kvöldmat.

Kvöldvakan: Á kvöldvökunni var leikrit, framhaldsaga auk hugleiðingar – og mikið sungið.

Fyrstu myndir birtust á Facebooksíðu Vatnaskógar en munum birta myndir hér á heimasíðunni á morgun, laugardag. Ef þú þarft að hafa samband við okkur í Vatnaskógi, er hægt að senda tölvupóst á netfangið arsaell@kfum.is