Fyrsti dagurinn hér í skóginum gekk eins og í sögu, boðið var upp á leiki, knattspyrnu, frjálsar íþróttir og báta. Drengirnir léku sér á kassabílum, einhverjir kíktu út í skóg og skoðuðu skógarkofa og kúluhúsið okkar. Þeir tóku duglega til matar síns, enda boðið upp á dýrindis steiktan fisk í hádeginu og heimabakað brauð og súpu í kvöldmat. Kvöldvakan var að venju fjörug, boðið upp á leikritið Bergmál, framhaldssögu um Najac, 12 ára dreng frá Haiti og síðan sagði Gunnar foringi dæmisögu Jesú um skulduga þjóninn.

Þegar kvöldaði bar smávægis á heimþrá hjá nokkrum guttum, en þó ekkert stórvægilegt og drengirnir allir komnir undir sæng eða inn í svefnpoka um 23:15. Lúsmýið mætti seinnipartinn en við munum sjá betur þegar líður á daginn í dag, hvaða áhrif það hefur á drengina. Drengirnir hafa ekki kvartað mikið enn, en sumt starfsfólkið reyndist veislumatur.

Drengirnir vöknuðu sumir snemma í morgun, enda spennandi að vera á nýjum stað, en væntanlega ná þeir að sofa lengur á morgun, enda ströng dagskrá í dag. Framundan í dag er vatnafjör, þar sem drengjunum gefst tækifæri til að uppgötva hversu kalt Eyrarvatnið er. Boðið verður upp á tæplega 2 km langhlaup sem við köllum brekkuhlaup. Einhverjir knattspyrnuleikir verða á dagskrá, spilastund verður eftir vatnafjörið til að leyfa drengjunum að ná úr sér hrollinum og íþróttahúsið verður opið.

Hægt verður að sjá ljósmyndir frá 6. flokki á Flickr svæði KFUM og KFUK.  Slóðin á myndasafnið er: https://www.flickr.com/photos/kfum-kfuk-island/albums/72157709494962811. Því miður er smá seinkun á birtingu mynda frá því í gær en þær eru væntanlegar þegar líður á daginn.

Ef þú þarft að hafa samband við okkur í Vatnaskógi, er hægt að senda tölvupóst á netfangið elli@vatnaskogur.net.


Fræðsluinnlegg að morgni annars dags – Heimþrá

Í þessum flokki bar aðeins á heimþrá í gærkvöldi fyrir svefninn, þó meira en 90% drengjanna njóti sín mjög vel. Því þykir mér mikilvægt að útskýra fyrir þeim foreldrum sem áhuga hafa hvaða hugmyndafræði og nálgun við aðhyllumst í þessum flokki í Vatnaskógi í tengslum við heimþrá. Því er hér smá innlegg.

Þrátt fyrir að heimþrá hafi ekki mikil áhrif nema á mjög lítinn hluta drengjanna er heimþrá mikilvæg tilfinning og getur snert okkur öll. Heimþrá snýst um missi og er þannig nátengd sorg. Viðbrögð drengjanna eru þannig oft eins og skyndikúrs í sorgarviðbrögðum. Þegar heimþrá nær tökum á drengjunum, geta þeir komið með ásakanir, lokað sig af, reiðst og/eða notað samningatækni til að takast á við vanlíðan/sorgina. Á stundum fylgir líkamleg vanlíðan, oftast nær í tengslum við magann (eða meltingarkerfið) þó stundum birtist líkamlega vanlíðanin í hausverk eða stirðleika í liðum.

Fullorðnir einstaklingar þekkja væntanlega flest þessi einkenni, enda fullkomlega eðlileg viðbrögð við áfalli og breyttum aðstæðum. Fyrir marga drengina í sumarbúðum eru þessar sveiflukenndu og sterku tilfinningar hins vegar nýjar og jafnvel áður óþekktar og þeir hafa ekki hugmynd um hvernig hægt er að takast á við þær.

Í Vatnaskógi leggjum við áherslu á að takast á við þessar tilfinningar í samráði við foreldra og höfum samband strax og við teljum að  tilfinningarnar hefti tækifæri drengjanna til að njóta dvalarinnar. Það að við höfum samband merkir samt alls ekki að við teljum að viðkomandi drengur þurfi að fara heim, heldur miklu fremur viljum við að þekking foreldra á barninu nýtist til að hjálpa okkur að finna leiðir til að leyfa barninu að njóta sín.

Aðferðafræðin í heimþrármálum hérna í Vatnaskógi þessa vikuna er sú að hjálpa barninu að brjótast út úr sorgarferlinu, sættast við umhverfi sitt og sjá tækifærin í dvölinni. Þannig viðurkennum við og skiljum tilfinningarnar en reynum að beina athygli þeirra frá vanlíðuninni að tækifærunum.

Við trúum því að þessi reynsla drengjanna og það að láta ekki stjórnast af vanlíðan, þó hún sé viðurkennd, sé mikilvæg fyrir drengina og hjálpi þeim til að þroska tilfinningar sínar og andlegt atgervi. Við skiljum þó líka að það getur gerst að aðstæður, upplifun og tilfinningar drengjanna séu þess eðlis að þeir eru einfaldlega ekki tilbúnir til að takast á við dvölina og þurfa að vera skemur en áætlað var í upphafi. Það gerist þó mjög sjaldan.