Í dag er veisludagur í Vatnaskógi. Á veisludegi í dag verður boðið upp á víðavangshlaup, sem er 4,2 km hlaup í kringum Eyrarvatn, þar sem keppendur þurfa m.a. að vaða tvo mjög mismunandi árósa, annars vegar mjög grýttan árfarveg og hins vegar sandburð, þá þarf að hlaupa fram hjá kríuvarpi og á leiðinni er mjög fjölbreytt undirlag sem hlaupið er á. Nú í morgunsárið er boðið upp á úrslitaleikinn í knattspyrnumótinu og spjótkast, auk þess sem boðið er upp á báta og körfuboltaleiki.

Síðar í dag verður knattspyrnuleikur milli drengja og foringja, smíðaverkstæði og bátar verða í boði, heitu pottarnir verða opnaðir og drengirnir verða hvattir til að fara í sturtu og snyrtilegri föt.  Loks hefst veislukvöld kl. 18:30. Boðið verður upp á dýrindismat, drengirnir taka við viðurkenningum fyrir árangur í þeim fjölda móta sem eru í gangi í hverri viku, Sjónvarp Lindarrjóður verður með útsendingu, lokakafli framhaldssögunnar um Najac verður lesin og margt fleira.

Dagskráin í gær var fjölbreytt og spennandi, það bar ögn á núningi milli drengjanna enda margir orðnir þreyttir eftir fjöruga dagskrá síðustu þrjá daga. Það fór þó allt vel og óhætt að segja að hér hafi allir ótakmörkuð tækifæri til að njóta sín.

Öðru hvoru nefna foreldrar við mig að þeir vildu óska þess að þau gætu komið upp í Vatnaskóg og kynnst staðnum sem hefur jafn stóran sess í hjarta barnanna þeirra og raun ber oft vitni. Mig langar af þeim sökum að benda á tvö frábær tækifæri sem Vatnaskógur býður upp á fyrir fjölskyldur. Annars vegar er vert að minnast á fjölskylduflokka sem eru nokkrum sinnum á ári í skóginum og hins vegar langar mig að benda sérstaklega á Sæludaga um Verslunarmannahelgina sem er vímuefnalaus hátíð hér í Vatnaskógi með fjölbreyttri dagskrá fyrir alla fjölskylduna.

Hægt er að sjá ljósmyndir frá 6. flokki á Flickr svæði KFUM og KFUK.  Slóðin á myndasafnið er: https://www.flickr.com/photos/kfum-kfuk-island/albums/72157709494962811. Við leitumst við að sýna yfirlitsmyndir af verkefnum drengjanna og hópmyndir þegar það á við, en forðumst að sýna myndir af einstökum drengjum í samræmi við lög um persónuvernd.

Ef þú þarft að hafa samband við okkur í Vatnaskógi, er hægt að senda tölvupóst á netfangið elli@vatnaskogur.net.