Í dag er lokadagur 7. flokks í Vatnaskógi. Dagskráin verður fjölbreytt og byrjaði með morgunstund, að loknum morgunverði og fánahyllingu. Eftir hádegisverð verður boðið upp á skemmtilega dagskrá með hópleikum auk þess sem drengirnir munu horfa á kvikmynd um upphaf starfsins í Vatnaskógi. Um kl. 15:00 verður boðið upp á kaffitíma, áður en drengirnir halda heim með rútunni. Áætluð heimkoma er kl. 17:00 við KFUM og KFUK húsið við Holtaveg. Foreldrar sem hyggjast sækja börnin sín í Vatnaskóg eru beðin um að vera komin á svæðið ekki síðar en 15:45.

Við sem störfum í Vatnaskógi ítrekum þakkir fyrir það traust sem foreldrar og forráðamenn sína okkur með að senda börnin sín hingað í sumarbúðir.

Við höfum því miður ekki náð að setja inn myndir úr flokknum í þessari viku og biðjumst velvirðingar á því.

Við í Vatnaskógi erum stöðugt að reyna að gera gott starf enn betra. Þess vegna viljum við endilega fá að vita um það sem drengjunum fannst ganga vel og eins það sem kannski var síðra. Ef drengirnir nefna eitthvað sérstakt eftir að þeir koma heim sem gæti hjálpað okkur til að gera ennþá betur, má endilega senda mér tölvupóst á elli@vatnaskogur.net eða hringja á skrifstofu KFUM og KFUK við Holtaveg.