Níundi flokkur í Vatnaskógi hefst í fyrramálið, 25. júlí. Á svæðinu þessa vikuna verða 50 drengir og tæplega tuttugu starfsmenn og sjálfboðaliðar. Fyrir foreldra og forráðamenn sem eru ennþá að skipuleggja ferðina og pakka með aðstoð drengjanna, þá eru allar helstu upplýsingar á slóðinni https://vatnaskogur.is/vatnaskogur-upplysingar-fyrir-foreldra-og-forradamenn/.

Starfsfólk sem annast dagskrá og umönnun drengjanna eru Hreinn Pálsson, Gunnar Hrafn Sveinsson, Davíð Guðmundsson, Friðrik Páll Schram Ragnarsson, Dagur Adam Ólafsson og Þráinn Andreuson.

Eldhúsi og þrifum er stýrt af Ingibjörgu Lóreley Zimsen Friðriksdóttur en henni til aðstoðar verða Viktoría Ásgeirsdóttir, Ísak Jón Einarsson og Hans Patrekur Hansson. Þess utan verða nokkrir matvinnungar á svæðinu, ungir framtíðarleiðtogar sem koma sem sjálfboðaliðar í skóginn og grípa í hvers kyns verkefni á svæðinu, hvort sem það er aðstoð í gönguferðum, uppvask, smíðar, frágangur og tiltekt á svæðinu eða skipulag leikja undir umsjón foringja. Matvinnungar þessarar viku eru m.a. Guðmundur Tómas Magnússon, Jakob Freyr Einarsson og Tómas Ingi Halldórsson.

Þá verða Matthías Guðmundsson, Þórir Sigurðsson og Sigurður Jóhannesson í flokknum og koma að ýmsu daglegu viðhaldi á tækjum og húsnæði.

Yfirumsjón með öllu sem fram fer í Vatnaskógi þessa vikuna er síðan í mínum höndum. Ég heiti Halldór Elías Guðmundsson kallaður Elli, en ég kom fyrst til starfa í Vatnaskógi í júní 1991.

Hægt verður að sjá einhverjar ljósmyndir frá 9. flokki á Flickr svæði KFUM og KFUK. Við höfum þó dregið verulega úr myndbirtingum í samanburði við liðin ár. Slóðin á myndir fylgir frétt morgundagsins.

Ef þú þarft að hafa samband við okkur í Vatnaskógi, er hægt að senda tölvupóst á netfangið elli@vatnaskogur.net.