Fyrsti dagurinn hér í skóginum gekk eins og í sögu, boðið var upp á leiki, knattspyrnu, kúluvarp og báta. Fjölmargir drengir nýttu tækifærið og stukku út í vatnið og nutu góða veðursins niður við bryggju fyrri hluta dagsins. Óformleg könnun á kvöldvöku leiddi jafnframt í ljós að allir drengirnir höfðu farið út í bát í gær. Drengirnir léku sér jafnframt á kassabílum og kíktu á smíðaverkstæðið eftir kvöldmat. Þeir tóku duglega til matar síns, enda boðið upp á kjötbollur í hádeginu og pastarétt í kvöldmat. Kvöldvakan var að venju fjörug, boðið upp á leikriti, framhaldssögu og síðan sagði Hreinn foringi Biblíusögu.

Þegar kvöldaði bar smávægis á heimþrá hjá nokkrum guttum, en þó ekkert stórvægilegt og drengirnir allir komnir undir sæng eða inn í svefnpoka um 23:15. Annars kólnaði all snögglega hér í gær um kl. 20, þegar vindátt breyttist úr vestan- í norðaustanátt á örfáum mínútum og nú í morgunsárið er fremur svalt úti við. Þessi breyting á vindátt þýðir jafnframt að það er mjög hvasst á vatninu og óvissa um bátsferðir á þessum öðrum degi flokksins.

Drengirnir sváfu vel í nótt, þó einhverjir hafi strögglað við að sofna á nýjum stað. Framundan í dag er svokallaður hermannaleikur, eltingaleikur með klemmum. Boðið verður upp á langstökk, hlaupagrein og líklega spjótkast. Knattspyrna verður á dagskrá, poolmót verður fyrir hádegi, íþróttahúsið verður opið fyrir frjálsan leik og þeir sem vilja geta dundað sér í smíðastofunni.

Því miður eru myndir frá flokknum ekki tilbúnar enn, og slóðin á myndasafnið því ekki tilbúin.

Ef þú þarft að hafa samband við okkur í Vatnaskógi, er hægt að senda tölvupóst á netfangið elli@vatnaskogur.net.


Fræðsluinnlegg að morgni annars dags – Heimþrá

Í þessum flokki eins og flestum flokkum í Vatnaskógi bar pínulítið á heimþrá í gærkvöldi fyrir svefninn, þó meira en 90% drengjanna njóti sín mjög vel. Því þykir mér mikilvægt að útskýra fyrir þeim foreldrum sem áhuga hafa hvaða hugmyndafræði og nálgun við aðhyllumst í þessum flokki í Vatnaskógi í tengslum við heimþrá. Því er hér smá innlegg.

Þrátt fyrir að heimþrá hafi ekki mikil áhrif nema á mjög lítinn hluta drengjanna er heimþrá mikilvæg tilfinning og getur snert okkur öll. Heimþrá snýst um missi og er þannig nátengd sorg. Viðbrögð drengjanna eru þannig oft eins og skyndikúrs í sorgarviðbrögðum. Þegar heimþrá nær tökum á drengjunum, geta þeir komið með ásakanir, lokað sig af, reiðst og/eða notað samningatækni til að takast á við vanlíðan/sorgina. Á stundum fylgir líkamleg vanlíðan, oftast nær í tengslum við magann (eða meltingarkerfið) þó stundum birtist líkamlega vanlíðanin í hausverk eða stirðleika í liðum.

Fullorðnir einstaklingar þekkja væntanlega flest þessi einkenni, enda fullkomlega eðlileg viðbrögð við áfalli og breyttum aðstæðum. Fyrir marga drengina í sumarbúðum eru þessar sveiflukenndu og sterku tilfinningar hins vegar nýjar og jafnvel áður óþekktar og þeir hafa ekki hugmynd um hvernig hægt er að takast á við þær.

Í Vatnaskógi leggjum við áherslu á að takast á við þessar tilfinningar í samráði við foreldra og höfum samband strax og við teljum að þessar tilfinningar hefti tækifæri drengjanna til að njóta dvalarinnar. Það að við höfum samband merkir samt alls ekki að við teljum að viðkomandi drengur þurfi að fara heim, heldur miklu fremur viljum við að þekking foreldra á barninu nýtist til að hjálpa okkur að finna leiðir til að leyfa barninu að njóta sín.

Aðferðafræðin í heimþrármálum hérna í Vatnaskógi þessa vikuna er sú að hjálpa barninu að brjótast út úr sorgarferlinu, sættast við umhverfi sitt og sjá tækifærin í dvölinni. Þannig viðurkennum við og skiljum tilfinningarnar en reynum að beina athygli þeirra frá vanlíðuninni að tækifærunum.

Við trúum því að þessi reynsla drengjanna og það að láta ekki stjórnast af vanlíðan, þó hún sé viðurkennd, sé mikilvæg fyrir drengina og hjálpi þeim til að þroska tilfinningar sínar og andlegt atgervi. Við skiljum þó líka að það getur gerst að aðstæður, upplifun og tilfinningar drengjanna séu þess eðlis að þeir eru einfaldlega ekki tilbúnir til að takast á við dvölina og þurfa að vera skemur en áætlað var í upphafi. Það gerist þó mjög sjaldan.