Framundan er lokadagur 10. flokks í Vatnaskógi. Dagskráin verður fjölbreytt og byrjar með morgunstund í Gamla skála að loknum morgunverði og fánahyllingu, en á stundinni verður horft á stutta fræðslumynd um líf og starf Sr. Friðriks Friðrikssonar. Að myndinni lokinni munu drengirnir pakka í töskur. Þá tekur við frjáls dagskrá fram til hádegis, þar sem smíðaverkstæðið og íþróttahúsið verða opin. Í hádegisverð verða hinar sívinsælu Vatnaskógarpizzur. Eftir hádegismat verður síðan boðið upp á hoppukastalafjör og hópleiki fram til kl. 14:30, þegar drengjunum verður boðið að horfa á stuttmynd um starfið í Vatnaskógi. Um kl. 15:00 verður boðið upp á kaffitíma, áður en drengirnir halda heim með rútunni. Áætluð heimkoma er kl. 17:00 við KFUM og KFUK húsið við Holtaveg. Foreldrar sem hyggjast sækja börnin sín í Vatnaskóg eru beðin um að vera komin á svæðið ekki síðar en 15:45.

Við sem störfum í Vatnaskógi ítrekum þakkir fyrir það traust sem foreldrar og forráðamenn sína okkur með að senda börnin sín hingað í sumarbúðir.

Hægt er að sjá örfáar ljósmyndir frá 10. flokki á Flickr svæði KFUM og KFUK.  Slóðin á myndasafnið er: https://www.flickr.com/photos/kfum-kfuk-island/albums/72157710165292852

Við í Vatnaskógi erum stöðugt að reyna að gera gott starf enn betra. Þess vegna viljum við endilega fá að vita um það sem drengjunum fannst ganga vel og eins það sem kannski var síðra. Ef drengirnir nefna eitthvað sérstakt eftir að þeir koma heim sem gæti hjálpað okkur til að gera ennþá betur, má endilega senda mér tölvupóst á elli@vatnaskogur.net eða hringja á skrifstofu KFUM og KFUK við Holtaveg.