Mæðraflokkur – mæður og börn er helgardvöl í Vatnaskógi þar sem mæður og börn fá að njóta þess að vera saman í Vatnaskógi.

Í flokknum er boðið upp á afslappaða og uppbyggilega dagskrá. Starfsmenn Vatnaskógar hugsa vel um þátttakendur, bæði í fæði og dagskrá og kapp er lagt á að allir skemmti sér vel.

Dagskráin hefst á kvöldverði kl. 19:00 á föstudeginum.

Verð

Verð er kr. 11.500 kr. á mann.

Skráning

Skráning er á vefsíðu okkar https://www.sumarfjor.is/Slot.aspx?id=1557. Einnig er hægt að hafa samband við KFUM og KFUK í síma 588 8899 eða í netfangið skrifstofa@kfum.is.

Rútuferðir

Verð kr. 4.000.- þarf að panta sérstaklega

Farangur

Vert er að vera vel búin/n til að njóta dvalarinnar sem best:

  • Búnað til útiveru, s.s. stígvél eða gönguskó, regngalla, hlý útiföt.
  • Sundföt (fyrir þá sem vilja fara í heita potta), íþróttaskó og föt til notkunar í íþróttahúsi.
  • Rúmföt (sæng eða svefnpoka og lak).
  • Annað sem hver og einn telur nauðsynlegt.

Athugið

Í ljósi aðstæðna mun Vatnaskógur sjá til þessa að öryggis sé gætt, tveggja metra reglan, aukin þrif og takmarkaður fjöldi gesta á staðnum þannig að hámarksfjöldi fullorðinna í flokknum mun verða 30.

Dagskrá flokksins

Föstudagur 22. maí

18:00 Svæðið opnar

19:00 Kvöldverður

20:00 Stutt ganga um svæðið

  • Íþróttahúsið opið
  • Bátar

21:00 Kvöldvaka í Gamla Skála

  • Kvöldhressing
  • Bænastund í kapellu
  • Íþróttahúsið opið

Laugardagur 23. maí

08:30 Vakið

09:00 Morgunverður

09:30 Morgunstund

  • Biblíulestur
  • Fræðslu- og spjallstund mæðra
  • Leikstund fyrir börnin á sama tíma

12:00 Hádegismatur

  • Bátar ef veður leyfir
  • Gönguferð
  • Föndursmiðjan
  • Íþróttahúsið opið

15:00 Síðdegiskaffi

  • Íþróttir og leikir í íþróttahúsi
  • Undirb. f. hæfileikasýningu á kvöldvöku
  • Heitir pottar við íþróttahús

18:30 Hátíðarkvöldverður – veislukvöld

19:30 Kvöldvaka

21:00 Kvöldhressing

  • Kvöldganga / Bænastund
  • Afslöppun í sal Birkiskála

Sunnudagur 24. maí

9:00-10:30 Morgunverður

  • Íþróttahúsið opið
  • Útivera

11:45 Lokastund

12:30 Hádegismatur

  • Brottför