Í ár verður boðið upp á Feðginaflokk dagana til 20.–21. maí, frá miðvikudegi fram á fimmtudag (Uppstigningardag).

Flokkurinn verður með aðeins breyttu sniði – ein nótt og flokkurinn endar með kvöldkaffi á fimmtudeginum. Það verður gaman og við munum hafa skemmtilega dagskrá í boði fyrir feður og dætur, með áherslu á góðar samverustundir í Vatnaskógi bæði innan- og utandyra.

Það verða gönguferðir, föndur, söngur, bátar, opið íþróttahús, kvöldvökur, fræðslu- og samverustundir og ótalmargt fleira.

Verð í feðginaflokk með þessu sniði er kr. 9.900 fyrir einstakling.

Skráning fer fram í síma 588-8899 eða á: https://www.sumarfjor.is/Slot.aspx?id=1599

Pabbar og dætur endilega skella sér í feðginaflokk í Vatnaskógi.