Í gær komu um 100 drengir í 2. flokk Vatnaskógar og munu dvelja í Skóginum fram til 15. júní.

Foringjar sem annast dagskrá og umönnun drengjanna eru Eiríkur Gústafsson, Benedikt Guðmundsson, Davíð Guðmundsson, Ísak Jón Einarsson, Gunnar Hrafn Sveinsson, Hreinn Pálsson og Jakob Viðar Sævarsson, Jens Elí Gunarson, Pétur Bjarni.  Þeim til halds og trausts er Baldur Ólafsson.  Forstöðumenn flokksins þeir  Ársæll Aðalbergsson og Þráinn Haraldsson. Auk þeirra eru reyndir starfsmenn sem sinna ýmisi þjónustu þeir Pétur Ragnarsson og Einar Helgi Ragnarsson.

Eldhúsi og þrifum er stýrt af Agnesi Þorkellsdóttur en henni til aðstoðar eru Dagný Guðmundsdóttir, Friðrik Páll Ragnarsson Schram, Ísak Jón Einarsson og Úlfar Darri Lúthersson.

Þess utan eru ungir matvinnungar á svæðinu, framtíðarleiðtogar í starfi KFUM og KFUK sem koma sem sjálfboðaliðar og grípa í hvers kyns verkefni á svæðinu, hvort sem það er aðstoð í gönguferðum, uppvask, smíðar, frágangur og tiltekt á svæðinu eða skipulag leikja undir umsjón foringja. Matvinnungar þessa vikuna eru þeir Bergur og Sölvi.

Þá eru þeir Fannar  Hannesson, Sigurður Jóhannesson og Þórir Sigurðsson í flokknum og koma að ýmsu daglegu viðhaldi á tækjum og húsnæði.

Allt gengur mjög vel, hressir og skemmtilegir drengir og duglegir að taka þátt í því sem í boði er, útileikir, keppnir í ýmsum greinum frjálsra íþrótta sem og skemmtilegir innleikir að ógleymdri smíðastofunni. Þá er knattspyrnumótið í fullum gangi.

Veðrið: Í gær var gott veður, hlýtt og þurrt. Nú í morgun hefur verið rigning en hægur vindur og gott bátaveður.

Maturinn: Í gær (fimmtud) var boðið uppá sænskar kjötbollur, og ávaxtasúrmjólk í kvöldmat, í dag (föstud.)er  fisk í raspi og franskar í hádegismat.

Kvöldvakan: Á kvöldvökunni var leikrit, framhaldsaga auk hugleiðingar – og mikið sungið.

Við munum birta myndir hér á heimasíðunni seinna í dag. Ef þú þarft að hafa samband við okkur í Vatnaskógi, er hægt að senda tölvupóst á netfangið arsaell@kfum.is