3.flokkur – Dagur 1

Í dag komu um 100 drengir í Vatnaskóg og munu þeir dvelja hér fram á sunnudaginn 21.júní. Þegar að drengirnir komu hingað byrjuðu þeir á því að velja sér borð í matskálanum til þess að sitja við, borð 1 til 7. Við hvert borð er borðforingi sem annast drengina og hefur gott eftirlit með þeim.

Hér er gott veður, 13°C og skýjað. Allt gengur mjög vel. Þetta eru hressir og skemmtilegir drengir sem eru duglegir að taka þátt í því sem er í boði eins og t.d. útileikir, keppnir í ýmsum greinum frjálsra íþrótta, skemmitlegir innleikir, bátar og að ógleymdir smíðastofunni. Rétt eins og íslenska úrvalsdeildin er komin af stað þá er svínadalsdeildin komin á fulla ferð hér í Vatnaskógi en í henni keppa borðin sín á milli. Mjög spennandi. Í kvöld verður svo kvöldvaka  að hætti Skógarmanna með leikjum, leikritum, framhaldssögu, hugleiðingu og söng.

Maturinn

Í hádegismat voru kjúklingaleggir og bakaðar kartöflur.

Í kaffitímanum var nýbökuð jógúrtkaka og amerískar smákökur sem voru ekkert smáar.

Í kvöldmatinn er blómkáls- og brokkolísúpa og nýbakað brauð.

Í kvöldhressingu eru svo ávextir.

Starfsfólk

Foringjar sem annast dagskrá og umönnun drengjanna eru þeir:

Benedikt Guðmundsson – Útileikjaforingi

Eiríkur Skúli Gústafsson – Bátaforingi

Gunnar Hrafn Sveinsson – Flotamálaráðherra

Ísak Jón Einarsson – Frjálsíþróttaforingi

Jens Eli Gunnarsson – Smíðaforingi

Styr Orrason – Knattspyrnuforingi

Þráinn Andreuson – Innileikjaforingi

Þeim til halds og trausts eru þeir Daði Rúnar Jónsson, Ólafur Gunnar Long og forstöðumenn flokksins Hreinn Pálsson og Pétur Ragnarsson.

Eldhúsi og þrifum í Vatnaskógi stýrir Hreiðar Örn Zoega Stefánsson. Honum til aðstoðar eru Hjalti Jóel Magnússon, Birna Júlía Björnsdóttir, Fannar Logi Hannesson og Jakob Viðar Sævarsson.

Þess utan er ungur aðstoðarforingi á svæðinu, framtíðarleiðtogi í starfi KFUM og KFUK sem kemur sem sjálfboðaliði og fer í allskonar verkefni á svæðinu, hvort sem það er aðstoð í gönguferðum, uppvask, smíðar, frágangur og tiltekt á svæðinu eða skipulag leikja undir umsjón foringja. Aðstoðarforingi þessa vikuna er hann Gunnar Þór Snæberg Valdimarsson.

Þá eru þeir Sigurður Jóhannesson og Þórir Sigurðsson í flokknum og koma að ýmsu daglegu viðhaldi á tækjum og húsnæði.

Ef það eru einhverjar spurningar þá er símatími forstöðumanns á milli 11 og 12 alla daga. Inn á þessa síðu munu svo koma myndir úr flokknum.

Meira síðar!

Hreinn Pálsson – forstöðumaður