Þriðji dagur flokksins er gengin í garð og óhætt að segja að það er pökkuð dagskrá framundan. Bátar, smíðaverkstæði, hástökk, knattspyrna, íþróttahús, spil í birkisal, listakeppni og margt fleira. Á kvöldvökunni í kvöld verður leikrit, framhaldssaga, söngur og að auki hæfileikasýning. Á hæfileikasýningunni geta þeir sem vilja sýnt hvaða þá hæfileika sem þeir kunna að búa yfir eins og t.d. söngur, hljóðfæraleikur, leikrit, brandari eða eitthvað annað. Það er skýjað í dag, logn og þurrt. Við kveiktum á heitupottunum í dag og er óhætt að segja að það hafi vakið mikla lukku hjá drengjunum.

Á morgun er svokallaður Veisludagur en það er síðasti heili dagurinn hér í Vatnaskógi. Hann verður Grande og mikil hátíð, við munum gera vel við okkur í mat og dagskrá.

Matseðill

Morgunmatur: Morgunkorn og súrmjólk.

Hádegismatur: Grænmetis Buff, sósa og salat.

Kaffitími: Eplakaka, döðlubrauð og kanillengjur.

Kvöldmatur: Pasta með ostasósu og nýbökuðu hvítlauksbrauði.

Kvöldhressing: Ávextir og kex.

Nýjar myndir eru komnar inn, við bætum svo við reglulega.

Hreinn Pálsson – Forstöðumaður

_MG_6616