Þriðji dagur flokksins er gengin í garð og óhætt að segja að það er pökkuð dagskrá framundan. Bátar, smíðaverkstæði, hástökk, knattspyrna, íþróttahús, spil í birkisal, listakeppni og margt fleira. Drengirnir eru duglegir að finna sér eitthvað að gera í frjálsatímanum og það er gott, flottur hópur. Á kvöldvökunni í kvöld verður leikrit, framhaldssaga, söngur og að auki hæfileikasýning. Á hæfileikasýningunni geta þeir sem vilja sýnt hvaða þá hæfileika sem þeir kunna að búa yfir eins og t.d. söngur, hljóðfæraleikur, leikrit, brandari eða eitthvað annað. Veðrið er gott í dag. Sól, 14 stiga hiti og logn. Við kveiktum á heitupottunum í gær og er óhætt að segja að það hafi vakið mikla lukku hjá drengjunum, þeir verða opnir áfram í dag. Vegna veðurs verðum við að bjóða upp á vatnafjör, það  kemur ekki annað til greina. Drengirnir verða sáttir, þeir hafa mikið spurt um vatnafjör.

Matseðill

Morgunmatur: Rjómalagað kakó og brauð með áleggi.

Hádegismatur: Hamborgari og franskar.

Kaffitími: Eplakaka, kókosbollur og döðlubrauð.

Kvöldmatur: Ávaxtasúrmjólk.

Kvöldhressing: Ávextir og kex.

Nýjar myndir komnar inn.

Hreinn Pálsson – forstöðumaður

117314829_330917514951861_2304307411667013074_n