Það er að koma að lokum hér hjá okkur í 11.flokki. Þetta er búið að vera frábær flokkur, skemmtilegir drengir.

Eftir hádegismat förum við að pakka. Því næst förum við í hópleiki og svo er lokasamvera í Gamla skála.

Kaffitími er klukkan 15:00 og brottför frá Vatnaskógi klukkan 16:00. Áætluð koma í bæinn er klukkan 17:00.

Þau ykkar sem sækja sína drengi eru vinsamlegast beðin um að vera mætt í síðastalagi klukkan 15:30 í Vatnaskóg.

Matseðill

Morgunmatur: Rjómalagað kakó og brauð með áleggi.

Hádegismatur: Vatnaskógar Pizza.

Kaffitími: Súkkulaðikleinuhringir og ís.

 

Nýjar myndir eru komnar inn.

Hreinn Pálsson – Forstöðumaður

117314829_330917514951861_2304307411667013074_n