Eins og undanfarin ár hafa Skógarmenn KFUM boðið uppá línuhappdrætti til styrktar Skálasjóð Skógarmanna KFUM.

– Verum með í að reisa nýjan Matskála í Vatnaskógi –

Línan kostar kr. 2.000.-

Sala á línum hófst á þann 5. júlí  en dregið verður laugardaginn 5. sept. á veislukvöldi í Karlaflokki.

Hámark 500 línur verða seldar en aðeins dregið úr seldum línum. Þar sem ekki voru seldar línur á Sæludögum eins og fyrri á þá er nægt úrval af línum.

Hægt er að kaupa línu með því að senda tölvupóst: arsaell@kfum.is eða pallskaftason@hotmail.com

Glæsilegir vinningar: 

  • Flugfarseðill til einhvers af áfangastöðum ICELANDAIR í Evrópu
  • Sæludagar 2021 – aðgangur f. fjölskyldu, 6 manna herbergi, lambalærismáltíð
  • Vikudvöl í Vatnaskógi sumarið 2021
  • Dvöl í feðga- feðgina- mæðra eða fjölskylduflokki í Vatnaskógi 2021 fyrir tvo
  • 2 x Gjafabréf – Einarsbúð Akranesi að upphæð kr. 20.000.-
  • Partýbúðin – gjafabréf kr. 10.000.-
  • 2 x Gjafabréf – Skemmtigarðurinn Gufunesi – fótboltagolf/minigolf  
  • Krauma náttúrulaugar – Gjafabréf fyrir tvo
  • Austurlandahraðlestinn – Gjafabréf máltíð f. tvo
  • Austur-indíafélagið – Gjafabréf máltíð f. tvo
  • 2 x Gjafakörfur frá N1
  • Harðfiskur Gullfiskur í gulapokanum
  • 2 x Gjafakörfur frá Ölgerðinni
  • 3 x Faðmlög – Lífið er ljóðasafn – Ögursögur – bækur e. Sigurbjörn Þorkelsson
  • 2 x Ísbúðin Háaleiti – ís í boði fyrir alla fjölskylduna 
  • 3 x Gjafabréf – Reynir bakari Dalvegi 4  
  • 4 x Vatnaskógarbolir
  • 10 x Heilsupakkar frá Lýsi

Með því að kaupa eina línu styðjum við Skálasjóð Vatnaskógar og uppbygginguna í Vatnaskógi

Dregið úr seldum línum í Karlaflokki Vatnaskógi 5. september.

Hámark 500 línur en aðeins verður dregið úr seldum línum.

 

Skógarmenn – Áfram að markinu!