Það er spennandi dagur framundan í Vatnaskógi í dag. Drengirnir voru vaktir 8:30 í morgun með ljúfum tónum. Nóttin gekk mjög vel, allir sváfu og enginn með heimþrá.

Í dag bjóðum við upp á fótbolta, frjálsar íþróttir, smíðaverkstæði, heita potta, íþróttahús, útileiki, körfubolta, listakeppni og margt fleira.

Eftir hádegismat verður farið í Hremannaleikinn. Hermannaleikurinn virkar þannig að við skiptum hópnum í tvennt, 50 vs 50, og kallast liðin Oddverjar og Haukdælir. Oddverjar labba út í Oddakot og bíða þar eftir Haukdælum. Leikurinn gengur út á það að ná klemmum af öxl drengjanna í hinu liðinu. Ef þú missir þína klemmu þá þarft þú að fara aftur í bækistöðvar og ná í nýja klemmu. Liðið sem safnar fleiri klemmum vinnur leikinn.

Það er kalt í dag, stíf norðaustanátt, 7-9 stiga hiti. Er júní eða janúar? Vindurinn kælir svo svakalega mikið. Ég mun hringja í einn af okkar bestu veðurfræðingum í dag, Theodór Frey Hervarsson, og spyrja hann út í veðrið. Fá svör og biðja hann um að laga veðurspána.

Fleiri myndir eru komnar á linkinn hér að neðan.

Matseðill – Dagur 3

Morgunmatur: Morgunkorn og súrmjólk.

Hádegismatur: Kjötbollur, kartöflumús, brún sósa.

Kaffitími: Jógúrtkaka, snúðar og ávextir.

Kvöldmatur: Lasagna og salat

Kvöldhressing: Pólókex, mjólkurkex, mjólk og vatn

 

Þangað til næst.

Hreinn Pálsson – forstöðumaður

Vatnaskógur 2021